Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli um 12 km. fyrir innan Akureyri og eru um 180 nemendur í skólanum. Sýn Hrafnagilsskóla byggir á skilningi, fagmennsku og dyggðum. Agastefna skólans er Jákvæður agi og meðal sérkenna skólans er umhverfismennt, öflug list- og verkgreinakennsla ásamt nýtingu tækni til náms. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is. Við óskum eftir að ráða [Meira...]
Categories
Featured posts
nóvember 4, 2024
október 25, 2024
Editor’s pick
Við óskum öllum nær og fjær góðra og gleðilegra jóla með þakklæti fyrir samstarfið á árinu. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 4. janúar 2024. Jólakveðja frá starfsfólki Hrafnagilsskóla.
Fimmtudaginn 7. desember var nemendum í 1. og 2. bekk Hrafnagilsskóla boðið í ævintýraferð í Akureyrarkirkju. Börnin fóru víða um kirkjubygginguna, niður í kapellu, inn í kirkjusalinn og upp að orgelinu. Í gegnum ævintýragönguna kynntust börnin jólasögunni frá Betlehem. Starfsfólk kirkjunnar tók á sig hin ýmsu hlutverk og börnin fengu að fara búninga og duttu [Meira...]
Forvarnardagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands á hverju hausti og þá er sjónum sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk. Átakið er haldið í samvinnu við ýmsa aðila sem koma að með einum eða öðrum hætti eins og Embætti Landlæknis og samtökin Heimili og skóli. Í ár var efnt til myndbandasamkeppni og var þemað: [Meira...]
Senn lýkur danskennslu hjá nemendum í 5.-10. bekk í Hrafnagilsskóla. Af því tilefni verður danssýning í íþróttahúsi skólans fimmtudaginn 30. nóvember kl. 13:10. Þar sýna nemendur hvað þeir hafa lært undanfarnar vikur hjá Elínu Halldórsdóttur danskennara og gaman væri að sjá nemendur í ,,betri fötunum” þennan dag. Öll eru hjartanlega velkomin