Hrafnagilsskóli

Læsisstefna

Hér finna foreldrar, nemendur og starfsfólk allar áherslur skólans í læsi — heimalestur, samstarf, matsramma og áherslur á hverju stigi.

1 Samstarf við foreldra

Yngsta stig

Í Hrafnagilsskóla er ætlast til þess að nemendur lesi heima 5 sinnum í viku og 15 mínútur í senn. Appið Læsir var tekið upp í skólanum haustið 2025 og skrá foreldrar lestur barna sinna þar. Þar er hægt að fylgjast með framvindu barnanna og hvort markmiðum í heimalestri sé náð.

Mikilvægt er að foreldrar og umsjónarkennari eigi í góðu samstarfi um heimalestur. Foreldrar og fjölskyldur geta ávallt fengið ráðgjöf varðandi heimalestur og lestur almennt hjá umsjónarkennara og/eða sérkennara. Mikilvægt er að leita aðstoðar áður en óþarfa vandi myndast.

Lesferill, hraðlestrarpróf, er lagður fyrir nemendur þrisvar sinnum yfir skólaárið. Allar niðurstöður prófa eru settar inn á Mentor þar sem foreldrar geta nálgast niðurstöður á auðveldan hátt. Niðurstöðurnar eru ræddar í foreldrasamtölum.

Miðstig

Á miðstigi er einnig notað appið Læsir til að skrá lestur nemenda. Ætlast er til að nemendur lesi heima a.m.k. 20 mínútur á dag, helst upphátt og fyrir einhvern sem þeir geta rætt efni textans við. Mikilvægt er að lesa fjölbreyttan texta, ræða efni hans við einhvern og fá orðútskýringar — það eflir mál- og lesskilning. Að öðru leyti er verklag á miðstigi svipað og á yngsta stigi.

Unglingastig

Á unglingastigi er lögð áhersla á yndislestur í 20 mínútur 5 daga vikunnar til að bæta lestraröryggi nemenda. Reynt er að efla sjálfstæði nemenda með því að þau taki sjálf ábyrgð á heimalestri, sérstaklega í 10. bekk.

Á skólatíma les kennari með nemendum Íslendingasögur og ýmsar bókmenntir, því mikilvægt er að efla færni þeirra í lesskilningi og málskilningi með því að útskýra textann samhliða lestri. Einnig er mikilvægt að nemendur kynnist fjölbreyttum textum — það eykur líkur á bættum málskilningi og getur verið áhugahvetjandi.

Upplýsingar um stöðu og framvindu

Upplýsingar um framvindu í leshraða má fá á Mentor.is og í framtíðinni á Matsferill.is. Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá umsjónarkennurum nemenda.

Lestrarverkefni heima

  • Yngsta stig: heimalestur skv. skipulagi umsjónarkennara, skráð í appið Læsi.
  • Miðstig: taka upp heimalestur og skila á Classroom, lesa bækur og vinna verkefni úr þeim.
  • Unglingastig: taka upp heimalestur og skila á Classroom.

Fræðsluerindi og leiðbeiningar um læsi

Finna má upplýsingar um læsi og ýmis lestrarverkefni á Laesisvefurinn.is.

Samstarf kennara

  • Faglegir teymisfundir
  • Samræmd námskrá innan bekkja og árganga
  • Deiling kennsluefnis og aðferða
  • Samstarf við ytri aðila

Þessi kafli er í vinnslu.

2 Heimalestur

Heimalestur er dýrmætur stuðningur sem barn fær á meðan það er að ná tökum á grunnfærni lestrar. Rannsóknir sýna að reglulegur lestur utan skólatíma hefur afgerandi áhrif á málþroska, orðaforða og almennt læsi.

Af hverju skiptir heimalestur máli?

Sjálfvirkni og færni

Lestur er færni sem krefst þjálfunar, svipað og íþróttir eða hljóðfæraleikur. Með daglegum lestri eykur barnið lesfimi sína og getur flutt athyglina frá hljóðum stafanna yfir í dýpri skilning á textanum.

Orðaforði og málskilningur

Í bókum mæta börnum fjölbreyttari orð og flóknari setningagerð en þau heyra í daglegu talmáli. Þessi málörvun leggur grunninn að góðu gengi í öllum námsgreinum síðar meir.

Samvera og jákvætt hugarfar

Þegar lesið er heima skapast tækifæri til gæðastunda. Jákvætt viðhorf foreldra til lestrar er grunnatriði — það smitast út í námið og eflir sjálfsmynd barnsins.

Vissir þú? Barn sem les í 20 mínútur á dag mætir um 1,8 milljónum orða á ári, á meðan barn sem les í aðeins 1 mínútu á dag mætir einungis um 8.000 orðum. Munurinn á þeim sem lesa og þeim sem lesa ekkert heima er gríðarlegur.

Ráð fyrir heimalesturinn

Það þarf ekki að vera flókið að styðja við barnið:

  • Hafið stundina stutta og ánægjulega. Munið að fullorðnafólkið slær taktinn — ef fullorðinn er neikvæður þá verður stundin neikvæð.
  • Ræðið um efnið. Spyrjið út í myndirnar eða hvað barninu finnst munu gerast næst.
  • Sýnið gott fordæmi. Látið barnið sjá ykkur lesa sjálf.

Samvinna heimilis og skóla er öflugasta tækið sem við eigum til að tryggja að öll börn blómstri sem lesarar og eigi farsæla skólagöngu.

Heimalestur í Hrafnagilsskóla

Í Hrafnagilsskóla ætlumst við til að heimalestri sé sinnt a.m.k. 5 sinnum í viku í 15–20 mínútur í senn. Við skráum heimalestur í appinu Læsi, sem er fáanlegt fyrir bæði Apple og Android, og einnig er hægt að skrá af síðunni Laesir.is.

Appið er fjölskyldum að kostnaðarlausu en skólinn útvegar aðgangskóða til að komast inn í bekk nemandans. Mikilvægt er að leita strax ráða hjá kennara ef heimalestur fer að ganga illa og fá ráðgjöf til þess að bæta þessa mikilvægu þjálfun.

3 Áherslur eftir stigum

Yngsta stig

Kennt er eftir aðferðum Byrjendalæsis í 1.–3. bekk. Þar er unnið með tengsl hljóðs og stafs til að byrja með, og unnið með flóknari texta eftir því sem færni eykst. Lestur, ritun, hlustun og frásögn eru æfð jöfnum höndum í Byrjendalæsi.

Í 4. bekk eiga nemendur að hafa náð öryggi í lestri og ritun, skilja flókin fyrirmæli og geta sagt skýrt og skipulega frá. Nánari útskýring er í matsrömmum hér að neðan.

Miðstig

Á miðstigi er mestur þungi læsiskennslunnar lagður á lesskilning, þar sem nemendur eiga að hafa náð ákveðinni færni í umskráningu og góðu flæði í lestrinum. Unnið er með fjölbreytta texta sem þyngjast eftir því sem líður á stigið. Unnið er með skilning, framsögn og ritun.

Í 7. bekk eiga nemendur að hafa náð góðum tökum á því að lesa ólíka texta af öryggi og skilningi, skrifa skipulega texta með fjölbreyttum orðaforða, tjá sig skýrt og skilmerkilega, taka virkan þátt í samræðum og hlusta af athygli.

Unglingastig

Á unglingastigi er aðalmarkmiðið að lesa sér til skilnings og auka orðaforða nemenda í þeim tilgangi að efla lesskilning. Unnið er með fjölbreytta texta í bókmenntum og lögð áhersla á hlustun, lestur og túlkun texta ásamt því að tjá sig í rituðu máli, sem eykur orðaforða og dýpkar skilning á uppbyggingu málsins og málfræði.

Í 10. bekk eiga nemendur að hafa náð góðum tökum á því að lesa texta af nákvæmni og með góðum, jöfnum hraða, sýna góðan skilning og draga viðeigandi ályktanir, tjá sig af öryggi og skrifa skýran texta með viðeigandi orðaforða og beitingu helstu málfræðireglna.

4 Matsrammar

Matsrammar lýsa þeim hæfniviðmiðum sem nemendur vinna eftir í hverjum árgangi. Smelltu á árganginn til að opna rammann.

Yngsta stig

Matsrammi fyrir 1. bekk
Viðmið Framúrskarandi Hæfni náð Á góðri leið Þarfnast þjálfunar Hæfni ekki náð
Stafaþekking Þekkir og beitir öllum bókstöfum af öryggi. Getur auðveldlega lesið og skrifað alla stafi. Þekkir flesta bókstafi og getur notað þá. Les og skrifar stafi nokkuð örugglega. Þekkir marga bókstafi og er að læra að nota þá. Er að þróa lesskilning og skrift. Þekkir nokkra bókstafi en þarf stuðning við lestur og skrift. Á í erfiðleikum með að þekkja og nota bókstafi.
Ritun Skrifar skýran og skipulagðan texta með góðum orðaforða. Notar rétta stafsetningu. Skrifar skiljanlegan texta og notar viðeigandi orðaforða. Gerir fáar villur. Er að þróa ritunarfærni. Notar einfaldan orðaforða og gerir stundum villur. Þarf aðstoð við ritun. Gerir margar villur í stafsetningu. Getur ekki skrifað sjálfstætt.
Hlustun Hlustar af athygli og skilur flókin fyrirmæli. Bregst við á viðeigandi hátt. Hlustar vel og skilur almenn fyrirmæli. Fylgir leiðbeiningum. Hlustar oftast og skilur einföld fyrirmæli. Er að læra að fylgja leiðbeiningum. Á erfitt með að halda athygli við hlustun. Þarf endurtekin fyrirmæli. Sýnir litla færni í hlustun.
Frásögn Segir skipulega frá og notar fjölbreyttan orðaforða. Tjáir sig af öryggi. Segir skýrt frá og notar viðeigandi orðaforða. Tjáir sig vel. Er að þróa frásagnarhæfni. Notar einfaldan orðaforða. Þarf stuðning við frásögn. Notar takmarkaðan orðaforða. Á erfitt með að tjá sig munnlega.
Matsrammi fyrir 2. bekk
Hæfniviðmið Framúrskarandi Hæfni náð Á góðri leið Þarfnast þjálfunar Hæfni ekki náð
Stafaþekking Þekkir alla stafi og hljóð þeirra örugglega. Getur unnið sjálfstætt með stafi og hljóð. Þekkir alla stafi og hljóð þeirra. Vinnur af öryggi með stafi. Þekkir marga stafi og sum hljóð þeirra. Er að æfa sig. Þekkir nokkra stafi en er óörugg/ur með hljóð þeirra. Á erfitt með að þekkja stafi og hljóð þeirra.
Ritun Skrifar skýrt og læsilega. Notar bil á milli orða og punkt í lok setninga. Skrifar læsilega og notar oftast hæfilegt bil milli orða. Er að æfa sig í að skrifa læsilega og nota bil milli orða. Þarf aðstoð við að forma stafi og setja bil á milli orða. Getur ekki skrifað læsilega án mikillar aðstoðar.
Hlustun Hlustar af athygli og skilur fyrirmæli fullkomlega. Bregst við á viðeigandi hátt. Hlustar vel og skilur flest fyrirmæli. Fylgir þeim oftast. Hlustar oftast og skilur einföld fyrirmæli. Á erfitt með að halda athygli við hlustun. Sýnir litla einbeitingu við hlustun.
Frásögn Segir skipulega frá og notar fjölbreytt orðaval. Talar skýrt og skilmerkilega. Segir vel frá og notar viðeigandi orðaval. Talar skýrt. Er að æfa sig í að segja frá og nota góð orð. Þarf hvatningu til að segja frá. Notar einföld orð. Á erfitt með að segja frá og tjá sig.
Matsrammi fyrir 3. bekk
Hæfniviðmið Framúrskarandi Hæfni náð Á góðri leið Þarfnast þjálfunar Hæfni ekki náð
Lestur Les skýrt og lipurt með góðum skilningi. Getur lesið flóknari texta. Les skýrt og skilur meginefni texta. Les nokkuð skýrt og skilur einfaldan texta. Les hægt en getur lesið einföld orð. Á erfitt með að lesa einföld orð.
Ritun Skrifar sjálfstætt og skipulega með góðri stafsetningu. Skrifar skipulega og notar góðan orðaforða. Gerir fáar stafsetningarvillur. Skrifar einfaldan texta með nokkrum villum. Getur skrifað stutt orð með aðstoð. Á erfitt með að skrifa einföld orð.
Hlustun Hlustar af athygli og skilur flókin fyrirmæli. Hlustar vel og skilur fyrirmæli. Hlustar oftast og skilur einföld fyrirmæli. Þarf endurtekin fyrirmæli. Á erfitt með að fylgja fyrirmælum.
Frásögn Segir skipulega og skýrt frá með ríkulegum orðaforða. Segir vel frá með góðum orðaforða. Segir nokkuð skýrt frá með einföldum orðaforða. Getur sagt frá með stuðningi. Á erfitt með að segja frá.
Matsrammi fyrir 4. bekk
Hæfniviðmið Framúrskarandi Hæfni náð Á góðri leið Þarfnast þjálfunar Hæfni ekki náð
Lestur og lesfimi Les skýrt og af öryggi með góðum skilningi. Getur lesið og túlkað fjölbreytta texta. Sýnir sjálfstæði í vali á lestraraðferðum. Les með góðum skilningi og getur unnið úr textanum. Beitir viðeigandi lestraraðferðum. Les með nokkrum skilningi og getur unnið úr einföldum textum. Þekkir helstu lestraraðferðir. Les hægt og hikandi. Þarf aðstoð við að skilja innihald texta. Á í erfiðleikum með lestur og sýnir lítinn skilning á efni.
Ritun Skrifar skýran og skipulagðan texta. Notar fjölbreytt orðaval og rétta stafsetningu. Sýnir sköpunargáfu. Skrifar skipulega og notar góðan orðaforða. Gerir fáar stafsetningarvillur. Skrifar einfaldan texta og notar viðeigandi orðaforða. Gerir nokkrar stafsetningarvillur. Skrifar stuttan og einfaldan texta. Þarf aðstoð við stafsetningu. Á í erfiðleikum með að skrifa samfelldan texta.
Hlustun Hlustar af athygli og skilur flókin fyrirmæli. Getur endursagt efni hnökralaust. Hlustar vel og skilur fyrirmæli. Getur endursagt aðalatriði. Hlustar og skilur einföld fyrirmæli. Getur endursagt helstu atriði. Á erfitt með að einbeita sér að hlustun. Þarf endurtekningu. Sýnir litla einbeitingu við hlustun.
Frásögn Segir skipulega og skýrt frá með ríkulegu orðavali. Sýnir góða framsögn. Segir vel frá með góðu orðavali og skýrri framsögn. Segir nokkuð skipulega frá með viðeigandi orðavali. Segir frá í einföldum setningum. Þarf stuðning. Á erfitt með að tjá sig munnlega.

Miðstig

Matsrammi fyrir 5. bekk
Hæfniviðmið Framúrskarandi Hæfni náð Á góðri leið Þarfnast þjálfunar Hæfni ekki náð
Lestur og lesfimi Les af öryggi. Leshraði í viðmiði 3. Les skýrt og áreynslulaust. Leshraði í viðmiði 2. Les nokkuð skýrt. Leshraði í viðmiði 1. Les hikandi og með erfiðleikum. Leshraði undir viðmiðum árgangs. Les mjög hægt og óskýrt. Leshraði undir viðmiðum árgangs.
Lesskilningur og túlkun texta Sýnir framúrskarandi skilning á efni texta og getur dregið ályktanir. Sýnir góðan skilning á efni texta og getur svarað spurningum. Sýnir nokkurn skilning á meginefni texta. Á erfitt með að skilja meginefni texta. Sýnir lítinn sem engan skilning á texta.
Ritun og stafsetning Skrifar fjölbreyttan texta með góðum orðaforða og réttri stafsetningu. Skrifar skýran texta með fáum villum. Skrifar samfelldan texta með nokkrum villum. Skrifar stuttan texta með mörgum villum. Getur ekki skrifað samfelldan texta.
Framsögn Segir skipulega frá og notar fjölbreytt orðaval. Segir skýrt frá og notar viðeigandi orðaval. Segir nokkuð skýrt frá með einföldu orðavali. Á erfitt með að segja samfellt frá. Getur ekki tjáð sig í samfelldu máli.
Hlustun og skilningur Hlustar af athygli og sýnir framúrskarandi skilning. Hlustar vel og sýnir góðan skilning. Hlustar oftast og sýnir nokkurn skilning. Á erfitt með að halda athygli og skilja. Sýnir litla sem enga einbeitingu við hlustun.
Matsrammi fyrir 6. bekk
Hæfniviðmið Framúrskarandi Hæfni náð Á góðri leið Þarfnast þjálfunar Hæfni ekki náð
Lestur og lesfimi Les margvíslega texta af öryggi. Leshraði í viðmiði 3. Les af nokkru öryggi. Leshraði í viðmiði 2. Les nokkuð skýrt en stundum hikandi. Leshraði í viðmiði 1. Les hægt og hikandi. Þarf oft að stoppa við erfið orð. Leshraði undir viðmiðum árgangs. Les mjög hægt og á í erfiðleikum með að tengja saman orð. Leshraði undir viðmiðum árgangs.
Lesskilningur og túlkun texta Sýnir framúrskarandi skilning á efni sem lesið er. Getur dregið ályktanir og túlkað textann. Sýnir góðan skilning á efni sem lesið er. Getur svarað spurningum úr texta. Sýnir nokkurn skilning á efni sem lesið er. Getur svarað einföldum spurningum. Á erfitt með að skilja innihald texta. Þarf aðstoð við að svara spurningum. Sýnir lítinn sem engan skilning á lesnu efni.
Ritun og textasmíð Skrifar skýran og vel uppbyggðan texta með góðum orðaforða. Notar fjölbreytt orð og setningar. Skrifar skipulegan texta með góðum orðaforða. Notar viðeigandi orð og setningar. Skrifar einfaldan texta með grunnorðaforða. Notar einfaldar setningar. Skrifar stuttan og einfaldan texta. Þarf aðstoð við uppbyggingu. Á í miklum erfiðleikum með að skrifa texta.
Framsögn Segir skipulega og lifandi frá með ríkulegum orðaforða. Heldur vel athygli áheyrenda. Segir skipulega frá með góðum orðaforða. Heldur athygli áheyrenda. Segir frá með einföldum orðaforða. Getur haldið sig við efnið. Segir frá í einföldum setningum. Þarf stuðning við frásögn. Á erfitt með að segja samfellda frásögn.
Hlustun og skilningur Hlustar af athygli og sýnir framúrskarandi skilning á efninu. Hlustar vel og sýnir góðan skilning á efninu. Hlustar og sýnir almennan skilning á efninu. Hlustar en þarf aðstoð við að skilja efnið. Á erfitt með að einbeita sér og skilja efnið.
Matsrammi fyrir 7. bekk
Hæfniviðmið Framúrskarandi Hæfni náð Á góðri leið Þarfnast þjálfunar Hæfni ekki náð
Lestur og lesfimi Les margvíslega texta af öryggi. Leshraði í viðmiði 3. Les ólíka texta af öryggi. Leshraði í viðmiði 2. Les nokkuð skýrt en stundum hikandi. Leshraði í viðmiði 1. Les hægt og hikandi. Þarf oft að stoppa við erfið orð. Leshraði undir viðmiðum árgangs. Les mjög hægt og á í erfiðleikum með að tengja saman orð. Leshraði undir viðmiðum árgangs.
Lesskilningur og túlkun texta Sýnir framúrskarandi skilning við lestur fjölbreyttra texta. Dregur sjálfstæðar ályktanir. Les texta með góðum skilningi og getur túlkað meginefni hans. Les texta og skilur aðalatriði. Þarf stundum aðstoð við túlkun. Skilur einfalda texta en þarf oft aðstoð við túlkun. Á erfitt með að skilja einfalda texta og þarf mikla aðstoð.
Ritun og textasmíð Skrifar skýran og vel uppbyggðan texta með góðum orðaforða og réttri stafsetningu. Skrifar skipulegan texta með viðeigandi orðaforða og ágætri stafsetningu. Skrifar einfaldan og skiljanlegan texta. Skrifar stuttan texta með einföldum orðaforða. Á erfitt með að skrifa texta.
Framsögn Tjáir sig af öryggi og notar fjölbreyttan orðaforða. Heldur uppi samræðum. Tjáir sig skýrt og skilmerkilega. Tekur virkan þátt í samræðum. Tjáir sig nokkuð skýrt. Tekur þátt í samræðum með stuðningi. Tjáir sig í einföldum setningum. Þarf hvatningu í samræðum. Á erfitt með að tjá sig og taka þátt í samræðum.
Hlustun og skilningur Hlustar af athygli og sýnir framúrskarandi skilning á efninu. Hlustar vel og sýnir góðan skilning á efninu. Hlustar og sýnir almennan skilning á efninu. Hlustar en þarf aðstoð við að skilja efnið. Á erfitt með að einbeita sér og skilja efnið.

Unglingastig

Matsrammi fyrir 8. bekk
Hæfniviðmið Framúrskarandi Hæfni náð Á góðri leið Þarfnast þjálfunar Hæfni ekki náð
Lestur og lesfimi Les fjölbreytta texta af öryggi. Leshraði í viðmiði 3. Les texta af nákvæmni og með góðum jöfnum hraða. Leshraði í viðmiði 2. Les texta nokkuð vel en þarf að auka leshraða. Leshraði í viðmiði 1. Á í erfiðleikum með lestur og þarf þjálfun. Leshraði undir viðmiðum árgangs. Les ekki í samræmi við aldur og þroska. Leshraði undir viðmiðum árgangs.
Lesskilningur og túlkun texta Sýnir framúrskarandi skilning á flóknum texta og getur dregið ályktanir af mikilli nákvæmni. Sýnir góðan skilning á texta og getur dregið rökréttar ályktanir. Er að þróa með sér skilning á texta og færni í að draga ályktanir. Á erfitt með að skilja flóknari texta og þarf aðstoð við að draga ályktanir. Sýnir litla sem enga færni í að skilja texta og draga ályktanir.
Framsögn Tjáir sig skilmerkilega og af öryggi. Notar fjölbreytt málsnið við hæfi. Tjáir sig skýrt og skilmerkilega. Notar viðeigandi málsnið. Getur tjáð sig um ákveðið efni en þarf að æfa framsögn. Á erfitt með að tjá sig skilmerkilega. Þarf stuðning. Getur ekki tjáð sig um efni á öruggan hátt. Þarf mikinn stuðning.
Ritun og textasmíð Skrifar skýran og vel uppbyggðan texta með fjölbreyttum orðaforða. Beitir stíl og málsniði af öryggi. Skrifar góðan texta með rökréttri uppbyggingu og góðum orðaforða. Skrifar samfelldan texta með sæmilegri uppbyggingu. Skrifar einfaldan texta með aðstoð. Þarf að æfa uppbyggingu. Getur ekki skrifað samfelldan texta.
Málfræði og stafsetning Beitir reglum í málfræði og stafsetningu af miklu öryggi. Beitir helstu reglum í málfræði og stafsetningu rétt. Kann helstu reglur en gerir stundum villur. Kann helstu reglur en gerir tíðar villur. Sýnir litla þekkingu á málfræði og stafsetningu.
Matsrammi fyrir 9. bekk
Hæfniviðmið Framúrskarandi Hæfni náð Á góðri leið Þarfnast þjálfunar Hæfni ekki náð
Lestur og lesfimi Les fjölbreytta texta af öryggi. Leshraði í viðmiði 3. Les texta af nákvæmni og með góðum jöfnum hraða. Leshraði í viðmiði 2. Les texta nokkuð vel en þarf að auka leshraða. Leshraði í viðmiði 1. Á í erfiðleikum með lestur og þarf þjálfun. Leshraði undir viðmiðum árgangs. Les ekki í samræmi við aldur og þroska. Leshraði undir viðmiðum árgangs.
Lesskilningur og túlkun texta Sýnir framúrskarandi skilning á flóknum texta og getur dregið ályktanir af mikilli nákvæmni. Sýnir góðan skilning á texta og getur dregið rökréttar ályktanir. Er að þróa með sér skilning á texta og færni í að draga ályktanir. Á erfitt með að skilja flóknari texta og þarf aðstoð við að draga ályktanir. Sýnir litla sem enga færni í að skilja texta og draga ályktanir.
Framsögn Tjáir sig skilmerkilega og af öryggi. Notar fjölbreytt málsnið við hæfi. Tjáir sig skýrt og skilmerkilega. Notar viðeigandi málsnið. Getur tjáð sig um ákveðið efni en þarf að æfa framsögn. Á erfitt með að tjá sig skilmerkilega. Þarf stuðning. Getur ekki tjáð sig um efni á öruggan hátt. Þarf mikinn stuðning.
Ritun og textasmíð Skrifar skýran og vel uppbyggðan texta með fjölbreyttum orðaforða. Beitir stíl og málsniði af öryggi. Skrifar góðan texta með rökréttri uppbyggingu og góðum orðaforða. Skrifar samfelldan texta með sæmilegri uppbyggingu. Skrifar einfaldan texta með aðstoð. Þarf að æfa uppbyggingu. Getur ekki skrifað samfelldan texta.
Málfræði og stafsetning Beitir reglum í málfræði og stafsetningu af miklu öryggi. Beitir helstu reglum í málfræði og stafsetningu rétt. Kann helstu reglur en gerir stundum villur. Kann helstu reglur en gerir tíðar villur. Sýnir litla þekkingu á málfræði og stafsetningu.
Matsrammi fyrir 10. bekk
Hæfniviðmið A B+ B C+ C D
Lestur og lesfimi Les fjölbreytta texta skilmerkilega og af öryggi. Leshraði í viðmiði 3. Les nokkuð fjölbreytta texta af öryggi. Leshraði í viðmiði 2. Les texta af nákvæmni og með góðum jöfnum hraða. Leshraði í viðmiði 2. Les texta nokkuð vel en þarf að auka hraða. Leshraði í viðmiði 1. Á í erfiðleikum með lestur og þarf þjálfun. Leshraði undir viðmiðum árgangs. Les ekki í samræmi við aldur og þroska. Leshraði undir viðmiðum árgangs.
Lesskilningur og túlkun texta Sýnir framúrskarandi skilning á flóknum texta og getur dregið ályktanir af mikilli nákvæmni. Les á milli línanna af öryggi. Sýnir mjög góðan skilning á flóknum texta og getur dregið rökréttar ályktanir. Sýnir góðan skilning á texta og getur oftast dregið viðeigandi ályktanir. Sýnir nokkuð góðan skilning á texta en ályktanir ekki alltaf nákvæmar. Sýnir grundvallarskilning á einföldum texta. Á í erfiðleikum með að skilja einfaldan texta.
Framsögn Tjáir sig af miklu öryggi, skilmerkilega og notar ríkulegan orðaforða. Tjáir sig af öryggi og með góðum orðaforða. Notar viðeigandi málsnið. Tjáir sig af öryggi með viðunandi orðaforða. Getur tjáð sig um ákveðið efni en þarf að æfa framsögn. Á erfitt með að tjá sig skilmerkilega. Þarf stuðning. Getur ekki tjáð sig um efni á öruggan hátt. Þarf mikinn stuðning.
Ritun og textasmíð Skrifar skýran og vel uppbyggðan texta með fjölbreyttum orðaforða. Beitir stíl og málsniði af öryggi. Skrifar góðan texta með rökréttri uppbyggingu og góðum orðaforða. Skrifar skýran texta með viðunandi orðaforða. Skrifar nokkuð skýran texta en orðaforði er takmarkaður. Skrifar einfaldan texta með aðstoð. Þarf að æfa uppbyggingu. Á í erfiðleikum með að skrifa samfelldan texta.
Málfræði og stafsetning Beitir málfræðireglum af öryggi og gerir engar villur í stafsetningu. Beitir málfræðireglum af öryggi og gerir fáar villur í stafsetningu. Beitir helstu málfræðireglum rétt og gerir fáar villur í stafsetningu. Beitir einföldum málfræðireglum en gerir margar villur. Beitir einföldum málfræðireglum en gerir mjög margar villur. Á í miklum erfiðleikum með málfræði og stafsetningu.

5 Skimanir og próf

Þessi kafli er í vinnslu og verður uppfærður síðar.

↑ Aftur upp