Innra mats skýrsla og umbótaáætlun

Hrafnagilsskóli · Vor 2026

Höfundar skýrslu: Gæðaráð Hrafnagilsskóla 2025–2026
Ástrós Guðmundsdóttir, Auður Thorberg Jónasdóttir, Björk Sigurðardóttir, Nanna Árný Jónsdóttir, Óðinn Ásgeirsson, Ólöf Ása Benediktsdóttir og Silja Garðarsdóttir

Inngangur

Markmið gæðaráðs Hrafnagilsskóla er að skólinn bæti stöðu sína kerfisbundið frá ári til árs. Mikilvægast er að matið á því hvort að viðmið og vísbendingar séu til staðar leiði til umbóta.

Á skólaárinu sem er að líða var starfrækt virkt gæðaráð sem fundaði reglulega í vetur á skipulags- og vinnufundum.

Þessi skýrsla staðfestir þá stöðu sem matið leiddi af sér. Við erum spennt að takast á við umbæturnar á næsta skólaári og að vinna að bættum gæðum skólans.

Í gæðaráði skólaárið 2025–2026 sitja: Ástrós Guðmundsdóttir, Auður Thorberg Jónasdóttir, Björk Sigurðardóttir, Nanna Árný Jónsdóttir, Óðinn Ásgeirsson, Ólöf Ása Benediktsdóttir og Silja Garðarsdóttir.

193nemendur
23kennarar
200+börn og fullorðnir í skólanum

Í Hrafnagilsskóla eru 193 nemendur og við skólann starfa 23 kennarar auk skólastjóra og aðstoðarskólastjóra. Einnig starfa við skólann iðjuþjálfi, þroskaþjálfi, sex stuðningsfulltrúar, fimm skólaliðar, starfsmenn í frístund, húsverðir, ritari, bókavörður og hjúkrunarfræðingur í 20% stöðu. Að auki starfa sex bílstjórar hjá Sérleyfisbílum Akureyrar og þrír starfsmenn við mötuneytið sem rekið er af Eyjafjarðarsveit. Starfsmenn Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar sjá um baðvörslu í búningsklefum. Samanlagður fjöldi þeirra sem hér starfa, bæði barna og fullorðinna, er yfir 200 manns og er skólinn fjölmennasti vinnustaður sveitarfélagsins.

Starfsáætlun um innra mat

Haustið 2024 var gæðaráð stofnað við skólann með aðstoð ráðgjafa frá Ásgarði, Gunnþóri Eyfjörð Gunnþórssyni. Samkvæmt ráðleggingum um stofnun gæðaráðs eru fulltrúar foreldra, starfsmanna, kennara og stjórnenda í ráðinu. Gæðaráðið fundaði á mánudögum kl. 14:30–15:45, að jafnaði einu sinni í mánuði. Unnið var eftir starfsáætlun gæðaráðs og vel gekk að halda fundi, leggja fyrir mat samkvæmt áætlun og bera saman gögn.

Starfsáætlun gæðaráðs má skoða hér: Starfsáætlun gæðaráðs 2025–2026.

Niðurstöður mats

Rýnt var í ýmsa þætti skólastarfsins sem snúa að stjórnun og faglegri forystu, námi og kennslu og að lokum að innra mati. Undir hverjum þessara þriggja þátta liggja mörg viðmið og voru þau metin út frá eftirfarandi matsviðmiðum:

  • Mjög gott verklagSamræmist fyllilega lýsingu um gæðastarf. Flestir eða allir þættir sterkir.
  • Gott verklagFlestir þættir í samræmi við lýsingu á gæðastarfi en möguleikar á umbótum. Fleiri styrkleikar en veikleikar.
  • Uppfyllir viðmið um gæðastarf að mörgu leytiEinhverjir mikilvægir þættir sem þarfnast úrbóta. Fleiri veikleikar en styrkleikar.
  • Óviðunandi verklagUppfyllir ekki viðmið um gæðastarf á mörgum mikilvægum þáttum. Mikil þörf á umbótum á flestum eða öllum þáttum.

Þeir þættir sem ekki uppfylltu gott eða mjög gott verklag voru skoðaðir sérstaklega og í framhaldinu voru teknir út þættir sem ákveðið var að leggja áherslu á og þeir settir í umbótaáætlun fyrir næsta skólaár.

Gögn eru af ýmsum toga. Stuðst var við niðurstöður Skólapúlsins, foreldrakannanir á vegum skólans, sjálfsmatsgögn vegna tilraunaverkefnis og mat á kennslu. Matið sjálft fer þannig fram að gæðaráð fór yfir öll gögn, niðurstöður voru ræddar og bornar saman við viðmiðin.

Heildarniðurstaða innra mats – Skólaprófíll Hrafnagilsskóla

Heildarniðurstaðan sýnir gæðaprófíl skólans við lok skólaársins.

Stjórnun og fagleg forysta
  • Samvirkni í stefnumótunGott verklag
  • Faglegt samstarf og samræðaGott verklag
  • Tengsl við foreldra og aðra í skólasamfélaginuGott verklag
  • Umbætur og innleiðing breytingaGott verklag
  • Vinnulag, verklagsreglur og áætlanirGott verklag
  • Starfsmannastjórnun og verkaskiptingGott verklag
  • Leiðtogahæfni stjórnenda og starfsfólksGott verklag
Nám og kennsla
  • Inntak og námskráGott verklag
  • Árangur námsGott verklag
  • Gæði kennsluGott verklag
  • Skipulag námsGott verklag
  • NámsvitundUppfyllir viðmið að mörgu leyti
  • Ábyrgð og þátttakaGott verklag
Innra mat
  • SkipulagMjög gott verklag
  • FramkvæmdGott verklag
  • UmbæturMjög gott verklag

Litir vísa í matsviðmiðin hér að ofan.

Stjórnun og fagleg forysta

Gögn sem nýtt voru til að máta við viðmið og vísbendingar um gæðastjórnun og faglega forystu voru fundargerðir, niðurstöður kannana og starfsmannasamtala. Einnig var stuðst við starfsáætlun skólans, menntastefnu Eyjafjarðarsveitar, skólanámskrá og fréttabréf Hrafnagilsskóla.

Niðurstaða

Almennt kemur þessi þáttur vel út, verklag er almennt gott. Lengi má gott bæta og í mörgum tilfellum má skýra verklag eða formgera enn frekar. Skólanámskrá og starfsáætlun skólans voru yfirfarnar og eru birtar á heimasíðu skólans. Stefna skólans var rædd á starfsmanna- og kennarafundum og myndræn útfærsla hennar leit dagsins ljós og var kynnt á skólaárinu. Tilraunaverkefnið Foreldrastefnumót var metið og fest í sessi með ákveðnu verklagi. Stjórnendur hafa markvisst yfirfarið og unnið að nýjum verklagsreglum og áætlunum um ýmis málefni er varða stjórnun. Stjórnendur yfirfóru og endurbættu starfslýsingar en ekki náðist að birta þær á skólaárinu. Framundan eru tækifæri til þess að efla þennan þátt enn frekar, til dæmis með því að formgera starfshætti kennslu og stuðningsúrræði.

Stjórnun og fagleg forysta
  • Samvirkni í stefnumótun
  • Faglegt samstarf og samræða
  • Tengsl við foreldra og aðra í skólasamfélaginu
  • Umbætur og innleiðing breytinga
  • Vinnulag, verklagsreglur og áætlanir
  • Starfsmannastjórnun og verkaskipting
  • Leiðtogahæfni stjórnenda og starfsfólks

Helstu umbætur næsta árs

  • Halda áfram að vinna að hæfnimiðuðu námi með ítarlegum, samræmdum bekkjarnámskrám.
  • Formgera samstarf við Foreldrafélag Hrafnagilsskóla.
  • Birta starfslýsingar.
  • Yfirfara, skrá og kynna réttindi og skyldur starfsfólks.
  • Gera fundaáætlun fyrir skólaárið 2026–2027.
  • Kynna fyrirhugaðar starfendarannsóknir.
  • Formgera skipulag kennslu, starfshátta og stuðningsúrræða við skólann.

Nám og kennsla

Gögn sem nýtt voru til að máta við viðmið og vísbendingar um nám og kennslu voru námskrár, einstaklingsnámskrár, skráningar í Mentor og niðurstöður kannana. Einnig var stuðst við starfsáætlun skólans, skólanámskrá og aðrar áætlanir um einstök verkefni.

Niðurstaða

Í þessum þætti er margt sem má bæta en einnig er margt sem er í góðu lagi. Ábyrgð og þátttaka nemenda er almennt mjög góð og verklag gott. Skipulag náms er almennt gott og gæðaráð metur gæði kennslu í góðu lagi. Sá þáttur sem kemur síst út er námsvitund, enda sést það í umbótaáætlun fyrir næsta skólaár þar sem lögð er áhersla á skýrari og markvissari markmiðssetningu nemenda og aukna meðvitund þeirra um námsframvindu sína.

Eitt af markmiðum vetrarins var að formgera innlit í kennslustundir og veita kennurum endurgjöf á kennslu. Þetta náði fram að ganga, gæðaráð tók þátt í matinu og undirbúningur og framkvæmd gekk mjög vel. Framtíðarsýn er að jafningjamat og ígrundun kennara aukist og þannig taki fleiri þátt í mati á gæðum kennslu.

Nám og kennsla
  • Inntak og námskrá
  • Árangur náms
  • Gæði kennslu
  • Skipulag náms
  • Námsvitund
  • Ábyrgð og þátttaka

Helstu umbætur næsta árs

  • Vinna áfram að bekkjarnámskrám.
  • Nýta niðurstöður úr fjölbreyttu mati á námsframvindu (Matsferill) til að auka framfarir nemenda.
  • Ákveðnir þættir í skólastarfinu metnir með innliti í kennslustundir.
  • Efla markmiðssetningu nemenda með markvissum hætti.
  • Nemendur þjálfaðir í að meta eigið nám og námsframvindu.
  • Skrá og birta verklag um hvar og hvernig sjónarmiða nemenda er aflað.

Innra mat

Gögn sem nýtt voru til að máta við viðmið og vísbendingar um innra mat voru umbótaáætlun, sjálfsmatsskýrsla og niðurstöður kannana. Einnig var stuðst við starfsáætlun skólans auk matsáætlunar ársins og langtímaáætlunar gæðaráðs.

Niðurstaða

Almennt kemur þessi þáttur mjög vel út, flestir undirþættir eru með mjög gott verklag.

Innra mat
  • Skipulag
  • Framkvæmd
  • Umbætur

Helstu umbætur næsta árs

  • Gæðaráð virkjað og endurnýjað ef þarf.
  • Endurskoða starfsáætlun gæðaráðs og tryggja fundartíma.
  • Halda því verklagi sem komst á í gæðaráði og yfirfara og vakta umbótaáætlun.
  • Áfram unnið með niðurstöður kannana og ýmissa gagna sem fyrir liggja.

↑ Efnisyfirlit

Umbótaáætlun skólaársins 2026–2027

Umbótaáætlun nær til þeirra þátta sem samkvæmt innra mati ber að fara í umbótaferli og þá er miðað við valda þætti sem ekki ná mjög góðu eða góðu verklagi. Umbætur geta varað í nokkra mánuði eða lengur. Mikilvægt er að umbótum séu sett viðmið um árangur, ábyrgðaraðila og að aðgerðatímabilið sé skilgreint.

Umbótaáætlunin skiptist í þrjá þætti, það er að segja: innra mat, nám og kennslu og stjórnun. Hver þessara þriggja þátta inniheldur að lágmarki þrjá undirþætti þar sem áhersluþættir eru tilgreindir nánar. Í hverri töflu er tækifæri til umbóta feitletrað og aðgerðir til umbóta skáletraðar þar fyrir neðan.

Innra mat

Skipulag
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Umbóta- og þróunaráætlun í kjölfar innra mats liggur fyrir og eftirfylgni vöktuð.Umbótaáætlun unnin samkvæmt forsniði frá ráðgjafa Ásgarðs. Unnið út frá gæðaviðmiðum sem gæðaráð vann við að meta skólaárið 2025–2026. Gæðaráð Vor 2026 Vor 2027 Áætlun tilbúin, kynnt starfsfólki og skólanefnd. Birt á heimasíðu.
Framkvæmd
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Skólinn nýtir niðurstöður könnunarprófa, kannana og skimana með markvissum hætti í innra mati.Stjórnendur og gæðaráð taka niðurstöður allra kannana sem lagðar eru fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk. Niðurstöður Matsferils teknar saman og skólastjóri kynnir þær á skólanefndarfundi. Stjórnendur / gæðaráð Haust 2026 Vor 2027 Gæðaráð fer yfir niðurstöður og tekur þær saman. Samantekt sumra kannana birt á heimasíðu en allar kynntar í skólanefnd, skólaráði og á starfsmannafundum.
Umbætur
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Áætlanir skólans um umbætur og þróunarstarf byggja á virku innra mati og öðrum gögnum um árangur skólastarfsins.Umbótaáætlun er byggð á gæðaviðmiðum sem útfyllt voru og metin af gæðaráði. Lagt er upp úr að framsetning sé skýr og í góðu samhengi við stefnu skólans og sveitarfélagsins. Stjórnendur og gæðaráð Haust 2026 Vor 2027 Innramatsskýrsla yfirfarin og metið hvort markmið hennar nást. Umbótaáætlun skólans er skýr fyrir starfsfólki skólans og skólanefnd.

Nám og kennsla

Inntak og námskrá
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Formgera betur bekkjarnámskrár sem kennarar vinna að.Kennarar vinna að bekkjarnámskrám með hæfniviðmið Aðalnámskrár grunnskóla til grundvallar. Sameiginlegur skilningur liggur til grundvallar vinnunni og samræmi á milli námsgreina og stiga. Stjórnendur og kennarar Haust 2026 Vor 2028 Að bekkjarnámskrá verði til í öllum námsgreinum og árgöngum. Sýnilegt á heimasíðu skólans.
Árangur náms
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Niðurstöður sem fást með fjölbreyttu mati (Matsferill) eru markvisst nýttar til að auka framfarir nemenda og mæta þörfum þeirra.Taka saman niðurstöður Matsferils og annars námsmats. Rýna til gagns í stoðteymi, læsisteymi og á stigsfundum. Læsisteymi og stjórnendur Haust 2026 Vor 2027 Samantekt tekin fyrir í gæðaráði og kynnt skólanefnd. Áætlanir um umbætur unnar út frá niðurstöðum.
Gæði kennslu
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Nemendum er gerð grein fyrir markmiðum kennslustunda og verkefna.Stjórnendur og gæðaráð fara í innlit í kennslustundir og meta tiltekna þætti. Kennarar fá skriflega/munnlega endurgjöf út frá matslista stjórnenda. Ígrundun á stigsfundum. Stjórnendur og gæðaráð Haust 2026 Vor 2027 Innlit í kennslustundir hjá öllum kennurum. Samantekt og kynning á niðurstöðum á kennarafundi.
Í námsumhverfi nemenda eru sjónrænar stoðir nýttar til stuðnings við nám, t.d. námsveggir, myndrænt dagskipulag, tölur, stafir, leiðbeiningar.Stjórnendur og gæðaráð fara í innlit í kennslustundir og meta tiltekna þætti. Kennarar fá skriflega/munnlega endurgjöf út frá matslista stjórnenda. Ígrundun á stigsfundum. Stjórnendur og gæðaráð Haust 2026 Vor 2027 Innlit í kennslustundir hjá öllum kennurum. Samantekt og kynning á niðurstöðum á kennarafundi.
Námsvitund
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Nemendur eru virkir þátttakendur í að setja sér markmið í námi.Kennarar eru leiðandi í því að nemendur setji sér sjálfir markmið í námi. Unnið með markmiðssetningu á öllum stigum. Kennarar Haust 2026 Vor 2027 Stigstjórar halda utan um vinnuna sem er metin á stigstjórafundi og í gæðaráði. Nemendaviðtöl á öllum stigum þar sem nemendur geta rætt markmið sín.
Nemendur þjálfast í að meta eigið nám, vinnu og námsframvindu.Á mið- og unglingastigi verður svokölluð bætingavika þar sem nemendur geta skoðað námsframvindu sína á Mentor og geta valið sér hæfniviðmið í samráði við kennara til að bæta. Kennarar Haust 2026 Vor 2027 – Allir nemendur á mið- og unglingastigi fara sjálfir inn á Mentor, skoða hæfnikortin sín og geta rætt þau.
Ábyrgð og þátttaka
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Til er skráð og opinbert verklag um hvernig sjónarmiða nemenda er aflað.Stjórnendur taka saman hvar og hvernig raddir nemenda heyrast. Stjórnendur Haust 2026 Vor 2027 Gæðaráð. Opinbert á heimasíðu skólans.

Stjórnun og fagleg forysta

Samvirkni í stefnumótun
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Í áætlunum um nám og kennslu er gerð grein fyrir hvernig unnið er með stefnu skólans.Stjórnendur tryggja tíma og svigrúm til þess að kennarar geti unnið að bekkjarnámskrám þar sem fram koma ákveðnir þættir varðandi nám, kennsluaðferðir, markmið, hæfniviðmið, námsmat, stefnu skólans o.fl. Skólastjórnendur Haust 2026 Vor 2028 Yfirfarnar af gæðaráði. Bekkjarnámskrár birtar á heimasíðu skólans.
Faglegt samstarf og samræða
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Aukin meðvitund kennara um þá faglegu hæfni og færni sem tilgreind er í reglugerð með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara.Í fundaáætlun vetrarins er á dagskrá fundur til þess að ræða almenna og sérhæfða hæfni og færni kennara. Í starfsþróunarsamtölum er umræða um þessa þætti á einstaklingsgrunni. Stjórnendur Haust 2026 Vor 2027 Niðurstöður teknar saman og mögulega kynntar fyrir skólanefnd og gæðaráði. Fundaáætlun stenst og kennarar svara spurningu um þennan þátt fyrir starfsþróunarsamtöl.
Tengsl við foreldra og aðra í skólasamfélaginu
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Foreldrum er markvisst kynnt stoðþjónusta skólans og þær áherslur sem koma fram í lögum um farsæld barna.Kynning á stoðþjónustu í fréttabréfi og kynningarfundur um farsældarþjónustu. Stjórnendur og innleiðingarteymi farsældar Haust 2026 Vor 2027 – Fréttabréf og fundur haldinn.
Umbætur og innleiðing breytinga
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Skýrt verklag í kringum stoðþjónustu og farsæld barna.Með tilkomu deildarstjóra stoðþjónustu og ráðningu þroskaþjálfa verður til öflugt, þverfaglegt stoðteymi. Tryggja þarf skýrt verklag og verkaskiptingu. Stjórnendur Haust 2026 Vor 2027 Yfirfarið af stjórnendum. Kynnt í gæðaráði og á kennara- og starfsmannafundi. Birt á heimasíðu.
Starfsmannastjórnun og verkaskipting
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Starfslýsingar stjórnenda og starfsfólks liggja fyrir.Yfirfara drög að starfslýsingum, kynna fyrir starfsfólki og birta á heimasíðu. Stjórnendur Haust 2026 Haust 2026 Gæðaráð fer yfir starfslýsingar. Allar starfslýsingar í handbók starfsfólks.
Réttindi og skyldur starfsfólks eru skráð og kynnt viðkomandi.Yfirfara þær upplýsingar um réttindi og skyldur starfsmanna sem eru til og útbúa nýjar ef þarf. Stjórnendur Haust 2026 Vor 2027 Gæðaráð fer yfir starfsmannahandbók. Réttindi og skyldur skýr í handbók starfsfólks.
Fundaáætlun fyrir skólaárið liggur fyrir sem nær til alls starfsfólks.Stjórnendur gera gróft skipulag að þeim fundum og fræðslu sem fyrirhuguð eru á fundartímum og starfsdögum. Stjórnendur Haust 2026 Haust 2026 Fundaáætlun lögð fyrir gæðaráð. Fundaáætlun send starfsfólki í tölvupósti.
Leiðtogahæfni stjórnenda og starfsfólks
Tækifæri til umbótaAðgerðir til umbóta Ábyrgð Hefst Lokið Hvernig metið Viðmið um árangur
Stjórnendur hvetja kennara til faglegs samstarfs og samræðu um nám og kennslu og til að rannsaka og rýna saman í árangur kennsluaðferða/-hátta með hliðsjón af gögnum um framfarir nemenda.Kennarar og annað fagfólk gera áætlun um starfendarannsókn skólaárið 2027–2028. Stjórnendur Haust 2026 Vor 2028 Stjórnendur yfirfara og leiðbeina kennurum varðandi gerð áætlana. Áætlunum skilað yfirförnum til stjórnenda.

↑ Efnisyfirlit