Tveir vinningshafar í teiknisamkeppni Mjólkursamsölunnar

Ár hvert efnir Mjólkursamsalan til teiknisamkeppni þar sem nemendum í 4. bekk um land allt gefst kostur á að senda mynd. Undir dyggri leiðsögn Einars Gíslasonar myndmenntakennara hafa nemendur í Hrafnagilsskóla unnið til verðlauna í þó nokkur skipti. Í ár voru það tveir nemendur sem voru valdir í hóp 12 verðlaunahafa en í [Meira…]

2024-05-02T14:07:31+00:002.maí 2024|

Hrafnagilsskóli stóð sig frábærlega í Skólahreysti

Hrafnagilsskóli stóð sig frábærlega í Skólahreysti sem fram fór í íþróttahöllinni á Akureyri í gærkvöldi. Nemendur skólans tóku þátt í fjölbreyttum keppnisgreinum sem reyndu á bæði líkamlega og andlega hæfileika þeirra. Keppt var í armbeygjum, dýfum, upphífingum, hreystigreip og hraðaþraut. Greinarnar eru krefjandi en skemmtilegar áskoranir fyrir keppendur. Lið Hrafnagilsskóla skipaði Haukur Skúli, Heiðrún, Berglind [Meira…]

2024-05-01T14:37:05+00:001.maí 2024|

Árshátíð yngsta stigs 2024

Árshátíð yngsta stigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 15. mars milli klukkan 13:00 og 15:00. Nemendur yngsta stigs sýna leikritið ,,Pysjunætur“ en það fjallar um börn í Vestmannaeyjum sem á hverju hausti bjarga pysjum.
Að loknum skemmtiatriðum stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi.
Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri (aðra [Meira…]

2024-03-06T10:15:55+00:006.mars 2024|

Árshátíð miðstigs 2024

Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, fimmtudaginn 29. febrúar kl. 19:00.

Dagskráin hefst á tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Að því loknu sýna nemendur í 5., 6. og 7. bekk stytta útgáfu af leikritinu ,,Glanni glæpur í Latabæ”.

Auk þess að leika, syngja og dansa í sýningunni sjá nemendur m.a. um [Meira…]

2024-02-23T14:24:53+00:0023.febrúar 2024|

Sprengidagshátíð 2024

Sprengidagshátíðin er alltaf einn skemmtilegasti dagur skólaársins hjá okkur í Hrafnagilsskóla. Eins og venjulega var nóg að gera. Skepnur af öllum stærðum og gerðum ráfuðu um skólann, birtust í draugahúsum og leituðu jafnvel til spákvenna. Auðvitað var marserað og sumir fengu sér pítsu. Að lokum var svo kötturinn sleginn úr tunnunni.

Hér eru [Meira…]

2024-02-13T15:02:45+00:0013.febrúar 2024|
Go to Top