Árshátíð yngsta stigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 15. mars milli klukkan 13:00 og 15:00. Nemendur yngsta stigs sýna leikritið ,,Pysjunætur“ en það fjallar um börn í Vestmannaeyjum sem á hverju hausti bjarga pysjum.
Að loknum skemmtiatriðum stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi.
Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri (aðra en sýnendur) og frítt fyrir þá sem eru yngri. Veitingar eru innifaldar í verði. Allur ágóði af miðasölu rennur í nemendasjóð og nýtist t.d. í að greiða lyftugjöld í skíðaferð og dagsferð 4. bekkinga.
Athugið að það er ekki posi á staðnum.
Skólabílar keyra ekki að árshátíð lokinni og frístund er opin milli kl. 15:00 og 16:00 fyrir þá sem þar eru skráðir.

Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur í 1. – 4. bekk í Hrafnagilsskóla