• Published On: 5.febrúar 2025

    Vegna mjög slæmrar veðurspár hefur verið ákveðið að aflýsa skólahaldi í Hrafnagilsskóla á morgun fimmtudaginn 6. febrúar. Almannavarnir hafa gefið út rauða veðurviðvörun fyrir svæðið frá kl. 10:00 til 16:00 og því ekkert vit að senda skólabíla af stað í fyrramálið þar sem ljóst er að ekki verður hægt að keyra heim. Af þessum sökum [Meira...]

Editor’s pick
  • Dagana 12. - 14. nóvember voru þemadagar hér í skólanum í tengslum við Dag íslenskrar tungu og var þemað að þessu sinni eldur og ís. Unnið var í blönduðum aldurshópum innan hvers stigs að fjölbreyttum verkefnum sem tengdust þemanu. Á yngsta stigi fengu nemendur tækifæri til að baka, mála, gera klippimyndir, búa til eldfjöll og [Meira...]

  • Í tilefni af Degi íslenskrar tungu og í framhaldi af þemadögum í Hrafnagilsskóla verður haldin hátíð föstudaginn 15. nóvember. Hún hefst klukkan 13:00 í íþróttasal skólans og stendur til kl. 15:00. Flutt verða atriði í tali og tónum sem tengjast þemanu sem að þessu sinni er eldur og ís. Nemendur í tónlistarnámi koma að dagskránni [Meira...]

  • Föstudaginn 8. nóvember var haldin glæsileg danssýning í íþróttasalnum undir stjórn Elínar Halldórsdóttur danskennara. Þar sýndu nemendur í 5. - 10. bekk dansa sem þeir hafa verið að æfa í haust. Gaman var að sjá hversu vel nemendur stóðu sig og margir sigrar unnir. Þarna eru greinilega liðtækir einstaklingar á dansgólfið á þorrablótum framtíðarinnar.  Eftir [Meira...]

  • Fannar Nói með húsið Hrafnagilsskóli fjárfesti í þrívíddarprentara og vínylskera síðastliðið vor .  Undanfarnar vikur hafa nemendur verið að ná tökum á þeirri tækni sem þarf til að þróa og hanna hluti sem hægt er að prenta út. Hér sjáum við tvo af þeim hlutum sem Fannar Nói Þorvaldsson í 8. bekk hefur [Meira...]