Ár hvert efnir Mjólkursamsalan til teiknisamkeppni þar sem nemendum í 4. bekk um land allt gefst kostur á að senda mynd. Undir dyggri leiðsögn Einars Gíslasonar myndmenntakennara hafa nemendur í Hrafnagilsskóla unnið til verðlauna í þó nokkur skipti. Í ár voru það tveir nemendur sem voru valdir í hóp 12 verðlaunahafa en í keppnina bárust [Meira...]
Categories
Featured posts
febrúar 28, 2018
febrúar 13, 2018
febrúar 8, 2018
Editor's pick
Hrafnagilsskóli verður settur mánudaginn 22. ágúst kl. 13:00 í íþróttahúsinu. Eftir skólasetninguna kynna umsjónarkennarar starf skólaársins í heimastofum bekkjanna. Mikilvægt er að foreldrar mæti með börnum sínum. Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir í viðtöl með foreldrum/forráðamönnum en mæta einnig á skólasetninguna. Þeir foreldrar sem ætla að nýta sér pláss í frístund á komandi skólaári eru beðnir að sækja um eða [Meira...]
Miðvikudaginn 25. maí var UNICEF-dagurinn í Hrafnagilsskóla en þann dag leysa nemendur ýmiss konar þrautir á skólalóðinni. Nemendur leituðu til aðstandenda með áheit og samtals söfnuðust 185.988 krónur. Þessi upphæð hefur þegar verið lögð inn á reikning samtakanna. Ef einhver umslög leynast enn heima er hægt að millifæra á reikning 701-26-102010, kt. 481203-5950. [Meira...]
Innkaupalistar fyrir skólaárið 2016-2017 Innkaupalisti yngstastigs Innkaupalisti miðstigs Innkaupalisti unglingastigs
Föstudaginn 3. júní var síðasti skóladagur nemenda í Hrafnagilsskóla. Þann dag tóku nemendur til í stofum, kepptu við starfsfólk í fótbolta og fóru í alls konar leiki á skólalóðinni. Að lokum var sameiginleg samverustund í Aldísarlundi og grillað á flötinni neðan við skóginn. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var dagurinn afar vel heppnaður [Meira...]