Hátíðin verður haldin í Laugarborg föstudaginn 2. mars frá klukkan 13:00—15:00.  Nemendur yngsta stigs sýna leikrit um álfa. Stórsveit 4. bekkinga flytur tónlistaratriðið sem  flutt var á Nótunni, uppskeruhátíð tónlistarskólanna. Að loknum skemmtiatriðum stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi.

Aðgangseyrir er 1.400 kr. fyrir 16 ára og eldri og frítt fyrir börn sem ekki eru byrjuð í grunnskóla. Veitingar eru innifaldar í verði. Ágóði af miðasölu og sjoppu rennur í ferðasjóð nemenda og er einnig notaður til að greiða lyftugjöld í skíðaferð. Sjoppan verður opin og þar er hægt að kaupa gos og sælgæti. Skólabílar keyra ekki að árshátíð lokinni.

Athugið að ekki er posi á staðnum.

 

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Nemendur í 1.-4. bekk í Hrafnagilsskóla