Vegna ófærðar og veðurs geta skólabílar ekki ekið af stað til að sækja nemendur í dag, 24. febrúar. Skólinn verður opinn fyrir þá nemendur sem komast í skólann en við biðjum ykkur að meta aðstæður á hverjum stað. Veðrið á að ganga niður samkvæmt veðurspá með morgninum og þá verður farið í að moka helstu leiðir.