Tónleikar á samverustundum

Um þessar mundir á Tónlistarskóli Eyjafjarðar 25 ára afmæli. Haldið var upp á afmælið með allsherjar afmælistónleikaviku. Nemendur skólans komu fram á samverustundum og spiluðu á hljóðfæri. Hér má sjá myndir frá tónleikunum.

2013-11-21T10:25:37+00:0022.nóvember 2013|

Myndir frá degi íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur 15. nóvember þetta árið. Boðið var til dagskrár í íþróttasalnum klukkan 13:00 þar sem nemendur komu fram, lásu upp, dönsuðu og sungu. Sagt var frá vinnu á þemadögum þar sem unnið var út frá þemanu, heilbrigði og velferð.  Hér má sjá myndir frá hátíðinni.

2013-11-21T10:17:45+00:0022.nóvember 2013|

Danssýning

clip_image002[4]Nemendur í öllum bekkjum Hrafnagilsskóla hafa verið í danskennslu undanfarna daga. Kara frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru hefur kennt þeim hina ýmsu dansa og verður [Meira…]

2017-09-29T14:48:00+00:0020.nóvember 2013|

Sundpokar til sölu

IMG_0107

Kæru sveitungar
Við nemendur í 10. bekk erum að selja sundpoka. Hægt er að hafa þá ómerkta og kosta þeir þá 1.900 kr. en nafnmerktir kosta þeir 2.200 kr. Pokarnir fást í svörtu, appelsínugulu, fjólubláu, lillabláu og kiwi grænu. Við reynum að fara sem víðast um [Meira…]

2017-09-29T14:48:00+00:0020.nóvember 2013|

Einkunnir í samræmdum prófum í 4. og 7. bekk

Nýlega bárust einkunnir í samræmdum prófum í íslensku og stærðfræði í 4. og 7. bekk. ÞAr sem prófin eru ekki stöðluð eru einkunnir milli ára ekki samanburðarhæfar. Þess í stað er reiknuð út samræmd einkunn sem gerir slíkan samanburð mögulegan. Meðaltal samræmdrar einkunnar er 30. Hér fyrir neðan má sjá einkunnir nemenda í Hrafnagilsskóla síðustu [Meira…]

2017-09-29T14:48:02+00:0020.nóvember 2013|
Go to Top