Útikennsla í Aldísarlundi

Í útikennslu í dag fóru nemendur í 2. bekk í Aldísarlund og vígðu nýja eldstæðið. Eldstæðið reyndist afar vel og greinabrauðin sem nemendur bökuðu runnu ljúflega niður. Uppbygging eldstæðisins er fyrsti áfangi í því að gera Aldísarlundinn að enn betra útivistarsvæði.

2016-05-10T15:20:37+00:0010.maí 2016|

Gott að eiga góða að

Um helgina mættu nokkrar galvaskar fjölskyldur upp í Aldísarlund og hjálpuðust að við að koma upp nýju eldstæði. Fulltrúar í stjórn foreldrafélagsins voru í forsvari og erum við í Hrafnagilsskóla afar þakklát fyrir þetta frábæra framtak og hlökkum til að nýta okkur þetta nýja eldstæði. [Meira…]

2016-05-31T13:34:09+00:009.maí 2016|

Árshátíð yngsta stigs Hrafnagilsskóla 2016

Árshátíð yngsta stigs var haldin í Laugarborg þriðjudaginn 19. apríl. Hún hófst á því að ,,stórsveit“ 4. bekkjar lék tvö lög og gaman var að sjá afraksturinn en Eyjafjarðarsveit býður öllum nemendum 4. bekkjar að læra á hljóðfæri einn vetur.

Sýningin fjallaði um himingeiminn og verur sem í honum búa. Hún var afar litrík og skemmtileg [Meira…]

2016-04-29T13:53:09+00:0022.apríl 2016|

Skráning nýrra nemenda í Hrafnagilsskóla, vorið 2016

Dagana 25. – 29. apríl stendur yfir skráning nýrra nemenda í Hrafnagilsskóla. Foreldrar eða forráðamenn eru beðnir að skrá tilvonandi 1. bekkinga (börn fædd 2010) og einnig eldri nemendur sem væntanlegir eru í skólann næsta haust. Á sama tíma er tekið á móti tilkynningum um flutning nemenda af svæðinu.

Þeir sem ætla að notfæra sér frístund [Meira…]

2016-04-20T15:31:52+00:0020.apríl 2016|

Árshátíð yngsta stigs Hrafnagilsskóla 2016

Hátíðin verður haldin í Laugarborg þriðjudaginn 19. apríl frá klukkan 14:00—16:00.  Tónlistaratriði verður í flutningi nemenda 4. bekkjar og síðan er sýning sem fjallar um himingeiminn og verur sem í honum búa. Að loknum skemmtiatriðum stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi.

Aðgangseyrir er 700 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri en 1.400 kr. fyrir eldri. Frítt er fyrir börn [Meira…]

2016-04-14T14:13:29+00:0014.apríl 2016|
Go to Top