Viðburðadagatal aprílmánaðar

Viðburðadagatal aprílmánaðar er komið á heimasíðuna.  Viðburðir mánaðarins eru eftirfarandi:

3.-7. apríl
Nemendur 6. bekkjar sjá um samverustundir.
5. apríl
Samlokusala á miðstigi.
6. apríl
Lokaæfing fyrir árshátíð yngsta stigs kl. 10:00.
Árshátíð yngsta stigs kl. 14:00 til 16:00.
7. apríl
Gettu betur á unglingastigi kl. 12:30.
10.-17. apríl
Páskaleyfi
18.-21. apríl
Nemendur 5. bekkjar sjá um samverustundir.
20. apríl
Sumardagurinn fyrsti.
24.-28. apríl
Nemendur 3. bekkjar sjá um samverustundir.
26. apríl
Sameiginleg samverustund, nemendur [Meira…]

2017-04-03T13:48:36+00:003.apríl 2017|

Árshátíð yngsta stigs

 

Hátíðin verður haldin í Laugarborg fimmtudaginn 6. apríl frá klukkan 14:00—16:00.  Nemendur yngsta stigs sýna leikrit um ungfrúrnar og herramennina. Að loknum skemmtiatriðum stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi.

Aðgangseyrir er 700 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri en 1.400 kr. fyrir eldri. Frítt er fyrir börn sem ekki eru byrjuð í grunnskóla. Veitingar eru innifaldar í verði. Ágóði [Meira…]

2017-03-31T10:44:17+00:0031.mars 2017|

Glæsileg árshátíð miðstigs

Föstudaginn 24. mars var árshátíð miðstigs haldin í Laugarborg. Þar sýndu nemendur  5., 6. og 7. bekkjar stytta útgáfu af leikritinu ,, Fólkið í blokkinni“. Áður höfðu þeir útbúið leiksmynd, búninga og leikskrá og margt fleira. Einnig sáu nemendur um tæknimálin í samvinnu við umsjónarkennarana sína. Boðið var upp á tónlistaratriði þar sem nemendur stóðu [Meira…]

2017-03-28T22:27:16+00:0028.mars 2017|

Danssýning

Senn lýkur danskennslu hjá nemendum í 1.-5. bekk í Hrafnagilsskóla og elsta árgangi í Krummakoti. Af því tilefni verður danssýning í íþróttahúsi skólans þriðjudaginn 28. mars kl. 13:15. Þar sýna nemendur hvað þeir hafa lært undanfarnar vikur hjá Elín Halldórsdóttur danskennara.

Allir hjartanlega velkomnir.

2017-03-27T12:32:47+00:0027.mars 2017|

Árshátíð miðstigs 2017

Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, föstudaginn 24. mars og hefst kl. 20:00.

Dagskráin hefst á tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Eyjafjarðar og að því loknu sýna nemendur í 5., 6. og 7. bekk stutt leikrit úr bókinni ,,Fólkinu í blokkinni“ og einnig er stuðst við samnefnda þætti.

Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og síðan [Meira…]

2017-03-20T13:50:25+00:0020.mars 2017|
Go to Top