Bleiki dagurinn 2017

Bleiki dagurinn verður haldinn hátíðlegur föstudaginn 13. október 2017 um land allt.
Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár í hinum bleika októbermánuði. Þennan dag hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn til að sýna samstöðu, klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi.
Gaman væri ef einhverjir hefðu þetta í huga fyrir morgundaginn en að sjálfsögðu er þetta engin [Meira…]

2017-10-12T16:29:47+00:0012.október 2017|

Útikennsla í 2. bekk

Þetta skemmtilega verkefni var unnið í útikennslu nemenda í 2. bekk. Fyrir ári síðan var nemendum kennt að vefa úr garni í textílmennt en nú ári seinna var ákveðið að rifja upp þá kunnáttu og færa út í náttúruna. Nemendur höfðu gaman að þessari vinnu og afraksturinn eru þessi fallegu listaverk.
2017-09-21T13:35:11+00:0021.september 2017|

Dagur læsis

Föstudaginn 8. september var dagur læsis á Íslandi og lásu þá allir í skólanum á sama tíma. Bæði stórir og smáir lásu í tuttugu mínútur og algjör kyrrð var meðan á lestrinum stóð. Gaman var að sjá fjölbreytni í bókum og lestraraðstæðum. Hér má sjá myndir frá deginum.

2017-09-12T17:42:19+00:0012.september 2017|

Útivistardagur

Þriðjudaginn 5. september var göngu- og útivistardagur skólans. Þrjár gönguleiðir voru valdar. Stysta leiðin var frá Hömrum yfir í Kjarnaskóg og gengu nemendur á yngsta stigi þá leið. Nemendur á mið- og unglingastigi gátu valið milli þess að ganga frá Naustaborgum yfir í Kjarnaskóg eða leiðina frá gömlu ruslahaugunum, upp í Fálkafell, að Gamla og [Meira…]

2017-09-29T14:47:21+00:007.september 2017|

Skólasetning

Hrafnagilsskóli verður settur þriðjudaginn 22. ágúst kl. 13:00 í íþróttahúsinu. Nemendur mæta við heimastofu sína og ganga inn í íþróttasal með umsjónarkennara. Eftir skólasetninguna kynna umsjónarkennarar starf skólaársins í heimastofum bekkjanna. Mikilvægt er að foreldrar mæti með börnum sínum. Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir í viðtöl með foreldrum/forráðamönnum en mæta einnig á skólasetninguna.

Þeir foreldrar sem [Meira…]

2017-08-21T15:45:09+00:0021.ágúst 2017|
Go to Top