Fréttir

Fréttir2024-10-25T11:37:28+00:00
Grillað með mínigrilli

6.febrúar 2025|

Snillingarnir í 7. bekk kynntu sér nokkur verkfæri sem nýtast í málmsmíði eins og málmsög, blikkskæri, bor, síðubitur og flatkjaftatöng. Svo smíðuðu þeir grill úr niðursuðudósum. Auðvitað þurfti svo að prófa þetta. Í Aldísarlundi grilluðum við lúxus-mínispjót, sykurpúða og skemmtum okkur konunglega kringum eldinn. Krakkarnir smíðuðu [Meira...]

Skóla aflýst á morgun fimmtudaginn 6. febrúar 2025

5.febrúar 2025|

Vegna mjög slæmrar veðurspár hefur verið ákveðið að aflýsa skólahaldi í Hrafnagilsskóla á morgun fimmtudaginn 6. febrúar. Almannavarnir hafa gefið út rauða veðurviðvörun fyrir svæðið frá kl. 10:00 til 16:00 og því ekkert vit að senda skólabíla af stað í fyrramálið þar sem ljóst er að [Meira...]

Árshátíð unglingastigs Hrafnagilsskóla 2025

23.janúar 2025|

Föstudagskvöldið 17. janúar fór fram árshátíð unglingastigs Hrafnagilsskóla í Laugarborg. Nemendur buðu upp á stórskemmtilega sýningu á leikritinu Shrek, sem leikstýrt var af Auðrúnu Aðalsteinsdóttur og Guðmundi Ólafi Gunnarssyni. Það var augljóst að allir lögðu sig fram við að gera þetta kvöld að skemmtilegri upplifun fyrir [Meira...]

Sköpunargleði og matargerðarlist í heimilisfræði

16.janúar 2025|

Nemendur við skóladeild Bjargeyjar við Hrafnagilsskóla hafa verið iðnir í heimilisfræðitímum í vetur. Hrekkjavökuþema var tekið í nokkur skipti og glæsileg piparkökuhús voru útbúin fyrir jólin þar sem sköpunargleði og skipulagshæfni nemenda fékk að njóta sín. Fyrir jólin voru líka bakaðar smákökur, skorið út í laufabrauð [Meira...]

Danssýning nemenda í 1. – 4. bekk

18.desember 2024|

Á samverustund í morgun sýndu nemendur sem æft hafa dans hjá Ungmennafélaginu Samherjum afrakstur haustannar. Það eru 16 nemendur sem æfa dans og þjálfararnir þeirra eru Berglind Eva Ágústsdóttir og Amý Elísabet Knútsdóttir en þær eru nemendur í 10. bekk. Það er skemmst frá því að [Meira...]

Kennarar að missa sig í samstilltum jólafatnaði

17.desember 2024|

Skemmtileg sjón blasti við í Hrafnagilsskóla þegar kennararnir Guðný, Elva Díana, Hulda og Lísbet á miðstigi mættu til kennslu í nákvæmlega eins jólafatnaði. Þetta frumlega framtak kennaranna var ein af mörgum skemmtilegum uppákomum í jólaklæðnaði starfsfólks skólans. Jólaskapið var sannarlega í hámarki þennan dag, þar sem [Meira...]

Go to Top