Á þemadögum bjó miðstigið til fjölmenningarlega matreiðslubók. Þar má finna uppskriftir frá hinum og þessum löndum, allt frá dönskum eplaskífum til súpu frá Litháen. Á tenglinum hér fyrir neðan er hægt að skoða þessa skemmtilegu matreiðslubók. Matreiðslubók Hrafnagilsskóla
Miðvikudaginn 16. nóvember verður Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í Hrafnagilsskóla. Hátíðin hefst klukkan 13:00 í íþróttasal skólans og stendur til kl. 15:00. Nemendur munu flytja atriði í tali og tónum sem tengjast þema dagsins en í þetta skiptið er það fjölmenning. Einnig munu nemendur 7. [Meira...]
Síðustu daga hefur hópur nemenda á unglingastigi ásamt Heiðari Ríkharðssyni kennara staðið fyrir flöskuflippkeppni. Í öllum bekkjum og meðal starfsfólks fór fram útsláttarkeppni og eftir stóðu kóngur og drottning í hverjum hópi nema í 4. bekk, þar sem enga drottningu er að finna. Föstudaginn 4. [Meira...]
Nemendum í 6. og 7. bekk voru í þessari viku afhentar microbit tölvur. Það er liður í átaksverkefni sem ráðist hefur verið í til að efla forritunarkennslu í grunnskólum á Íslandi. Verkefnið er samstarf Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Menntamálastofnunar, RÚV, Samtaka iðnaðarins og fyrirtækja sem samtökunum tengjast. [Meira...]
27. október ár hvert er alþjóðlegur bangsadagur. Í mörg ár hefur bókasafnskennari Hrafnagilsskóla hún Margrét Aradóttir haldið uppi heiðri bangsanna og minnt okkur hin á bangsadaginn með því að fylla bókasafnið af böngsum í öllum stærðum og gerðum. Einnig hefur hún í tilefni af bangsadeginum stillt [Meira...]
Fimmtudaginn 20. október birtist myndbrot frá Hrafnagilsskóla í krakkafréttum í Ríkissjónvarpinu. Í myndbrotinu svara nokkrir nemendur spurningunni ,,af hverju er gott að fá að kjósa?" Síðan skoraði allur nemendahópurinn á Árskóla á Sauðárkróki að svara næstu spurningu. Hér má finna slóðina á krakkafréttir http://www.ruv.is/sarpurinn/ruv/krakkafrettir/20161020