Pangea stærðfræðikeppniPangea stærðfræðikeppnin er fyrir alla nemendur 8. og 9. bekkja grunnskóla landsins. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað miklu ef [Meira...]
Árshátíðin verður haldin í Laugarborg fimmtudaginn 23. mars milli klukkan 13:00 og 15:00. Nemendur yngsta stigs sýna leikrit sem er samið upp úr bókinni ,,Langelstur í bekknum“. Að loknum skemmtiatriðum stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi. Aðgangseyrir er 1.500 kr. fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir [Meira...]
Sunnudagskvöldið 12. mars kl. 20.30 stendur Foreldrafélag Hrafnagilsskóla fyrir fræðslu um forvarnir gegn fíkniefnum. Hildur H. Pálsdóttir leiðir fræðsluna og er fyrirlesturinn unninn út frá hennar eigin reynslu sem foreldri og einnig út frá spurningum nemenda. Fyrirlesturinn verður í stofu 7 (á miðstigsgangi).
Skjótt skipast veður í lofti. Eins og allir vita gátum við ekki farið í Hlíðarfjall í morgun eins og áætlað var. Í staðinn förum við í fyrramálið og verður tilhögun alveg eins og hún átti að vera í dag, t.d. leiga á skíðabúnaði, rútur og nesti. [Meira...]
Sprengidagshátíðin er alltaf einn af skemmtilegustu dögum skólaársins. Eins og alltaf var mikið um dýrðir. Kynjaverur af öllum stærðum og gerðum svifu um skólann ýmist í draugaherbergjum, hjá spákonum, í marseringu eða borðandi pitsur. Að sjálfsögðu var kötturinn sleginn úr tunnunni. Myndir frá hátíðinni.
Þriðjudaginn 7. febrúar fór útför Sigurðar Aðalgeirssonar, fyrrverandi skólastjóra Hrafnagilsskóla, fram í Akureyrarkirkju. Sigurður var fyrsti skólastjóri skólans frá árinu 1971 og í hartnær þrjátíu ár starfaði hann við skólann ásamt konu sinni Sigurhönnu J. Salómonsdóttur. Hrafnagilsskóli, sem þá var eingöngu unglingaskóli, var vígður við hátíðlega [Meira...]