Árshátíð miðstigs 2025

[fusion_builder_container type=“flex“ hundred_percent=“no“ equal_height_columns=“no“ hide_on_mobile=“small-visibility,medium-visibility,large-visibility“ background_position=“center center“ background_repeat=“no-repeat“ fade=“no“ background_parallax=“none“ parallax_speed=“0.3″ video_aspect_ratio=“16:9″ video_loop=“yes“ video_mute=“yes“ border_style=“solid“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ type=“1_1″ background_position=“left top“ border_style=“solid“ border_position=“all“ spacing=“yes“ background_repeat=“no-repeat“ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“small-visibility,medium-visibility,large-visibility“ center_content=“no“ last=“no“ hover_type=“none“ min_height=““ link=““][fusion_text]

Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, fimmtudaginn 20. febrúar kl. 19:00.

Nemendur í 5., 6. og 7. bekk sýna stytta útgáfu af Disney kvikmyndinni Frost (Frozen). Auk þess að leika, syngja og dansa í sýningunni sjá nemendur m.a. um leikmynd, leikskrá og tæknivinnu.

Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu. Síðan verður stiginn dans undir tónlist sem nemendur á miðstigi hafa valið af kostgæfni auk þess sem Elín Halldórsdóttir danskennari mætir á svæðið og stjórnar dansi.

Skemmtuninni lýkur kl. 21:15. Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri (aðrir en sýnendur) og frítt fyrir þá sem yngri eru. Allur ágóði fer í sjóð sem greiðir niður lyftugjöld í skíðaferð og einnig fá 7. bekkingar niðurgreiðslu þegar þeir fara í skólabúðirnar á Reykjum. Athugið að ekki er posi á staðnum.

Veitingar eru innifaldar í verðinu og sjoppa verður á staðnum.

Öll eru hjartanlega velkomin!

Nemendur 5.-7. bekkjar Hrafnagilsskóla

[/fusion_text][/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]