Hrafnagilsskóli stóð sig frábærlega í Skólahreysti sem fram fór í íþróttahöllinni á Akureyri í gærkvöldi. Nemendur skólans tóku þátt í fjölbreyttum keppnisgreinum sem reyndu á bæði líkamlega og andlega hæfileika þeirra. Keppt var í armbeygjum, dýfum, upphífingum, hreystigreip og hraðaþraut. Greinarnar eru krefjandi en skemmtilegar áskoranir fyrir keppendur. Lið Hrafnagilsskóla skipaði Haukur Skúli, Heiðrún, Berglind [Meira...]
Categories
Featured posts
febrúar 5, 2018
janúar 19, 2018
janúar 16, 2018
Editor's pick
Í vetur starfaði hópur kennara í fagteymi um læsi í Hrafnagilsskóla og er það liður í vinnu við Þjóðarsáttmála um læsi. Afrakstur þeirrar vinnu er meðal annars þrjú myndbönd sem sjá má hér á heimasíðunni. Markmiðið var þríþætt, að segja frá lestrarnámi nemenda í skólanum, benda á hugmyndir fyrir heimilin og að draga saman mikilvægar [Meira...]
Mánudaginn 6. júní er starfsdagur í skólanum og engin kennsla. Skólaslit eru um kvöldið kl. 20:00 í íþróttasal skólans. Eftir skólaslit er kaffiboð fyrir nemendur 10. bekkjar sem eru að kveðja skólann, foreldra þeirra og starfsfólk skólans.
Dagana 30. maí - 2. júní voru þemadagar í Hrafnagilsskóla. Þessa daga voru nemendur uppi í Aldísarlundi í blönduðum aldurshópum og tóku þátt í fjölbreyttum verkefnum. Skipt var í átta stöðvar sem voru: Nornalundur, Tröllalundur, Ljóðalundur, matarstöð, tótemsúla, stígagerð og kortagerð. Gaman er að geta þess að einhverjir af nemendunum náðu að fylgjast með fuglafræðingi [Meira...]
Í útikennslu í dag fóru nemendur í 2. bekk í Aldísarlund og vígðu nýja eldstæðið. Eldstæðið reyndist afar vel og greinabrauðin sem nemendur bökuðu runnu ljúflega niður. Uppbygging eldstæðisins er fyrsti áfangi í því að gera Aldísarlundinn að enn betra útivistarsvæði.