Öryggi og vellíðan nemenda og starfsfólks er eitt af grundvallaratriðum í starfi Hrafnagilsskóla. Heildstæð áætlun um öryggi og heilbrigði inniheldur margvíslegar verklagsreglur og viðbragðsáætlanir sem tryggja að brugðist sé við aðstæðum á faglegan og yfirvegaðan hátt.

Áætlunin tekur meðal annars til:

  • Áhættumats og forvarna á vinnustað
  • Viðbragða við einelti, áreitni og ofbeldi
  • Rýmingaráætlunar og viðbragða við náttúruhamförum
  • Áfallahjálpar og viðbragða við slysum
  • Jafnréttisáætlunar fyrir alla í skólasamfélaginu

Stefna skólans er skýr: Við viljum skapa öruggt og heilbrigt umhverfi þar sem virðing, umhyggja og fagmennska eru höfð að leiðarljósi í öllum samskiptum.

Áætlun og stefnu um öryggi og heilbrigði Hrafnagilsskóla (pdf skjal)