Árshátíð unglingastigs verður haldin í Laugarborg föstudaginn 19. janúar n.k. Hún hefst kl. 20.00 og stendur til kl. 23.30. Ekið er heim að balli loknu.

Nemendur í 8., 9. og 10. bekk  sýna stytta útgáfu af Gauragangi og kennarar  á unglingastigi leikstýra. Auk þess að leika, syngja, spila og dansa á sýningunni sjá nemendur um búninga, förðun, leikmynd, leikskrá og alla tæknivinnu.

Verð aðgöngumiða er 700 kr. fyrir nemendur á grunnskólaaldri og 1.400 kr. fyrir þá sem eldri eru. Veitingar á hlaðborði eru innifaldar í miðaverðinu. Athugið að ekki er posi á staðnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Nemendur á unglingastigi