Matsáætlun skólaársins 2025–2026
Hrafnagilsskóli – Eyjafjarðarsveit
| Tímabil | Matsverkefni | Hvernig? | Ábyrgð | Þátttakendur | Viðmið | Birting |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Ágúst |
Stjórnun og fagleg forysta
Umbætur og innleiðing breytinga
Bundið val á unglingastigi. |
Kennaramat. Nemendamat. | Skólastjórnendur | Kennarar sem kenna bundið val og nemendur á unglingastigi. | Þegar a.m.k. 80% kennara og nemenda eru ánægðir með þetta fyrirkomulag. | Kannanir lagðar fyrir í lok skólaárs. Niðurstöður teknar saman og kynntar hagsmunaaðilum. |
| September |
Stjórnun og fagleg forysta
Tengsl við foreldra
Foreldrastefnumót |
Kennaramat. | Stjórnendur. | Kennarar. | Þegar a.m.k. 90% kennara eru ánægðir með þetta fyrirkomulag. | Niðurstöður teknar saman og framhald metið. Kynnt í gæðaráði. |
| Október |
Nám og kennsla
Inntak og námskrá
Bekkjarnámskrár. |
Kynnt og rætt á skólaráðs- og skólanefndarfundum. | Stjórnendur og gæðaráð. | Kennarar. | Þegar hægt er að bera saman drög að bekkjarnámskrám fyrir alla árganga og mynda samfellu. | Bekkjarnámskrár eru sýnilegar á heimasíðu skólans haustið 2027. |
| Nóvember |
Stjórnun og fagleg forysta
Faglegt samstarf og samræða
Fagteymi. Þróun tæknimála. Læsisstefna. Áætlun fyrir jákvæðan aga. Skipulag um Aldísarlund. |
Þróun tæknimála. Læsisstefna. Áætlun fyrir jákvæðan aga. Skipulag um Aldísarlund. | Stjórnendur og gæðaráð. | Kennarar. | Framtíðarsýn. Læsisstefnan tilbúin. Fræðsla og áætlanir um jákvæðan aga aðgengilegar og virkar. Skipulag og viðhald Aldísarlundar og útikennslusvæðis skýrt og samkvæmt áætlun. | Samantekt og mat á kennarafundi í vor. Samantekt í skýrslu um innra mat í júní 2026. |
| Desember |
Stjórnun og fagleg forysta
Starfsmannastjórnun og verkaskipting
Starfslýsingar, réttindi og skyldur starfsfólks. Fundar- og fræðsluáætlun. |
Gæðaráð fer yfir og metur. | Stjórnendur og gæðaráð. | Stjórnendur. | Þegar búið er að yfirfara starfslýsingar, réttindi og skyldur starfsfólks og fundar- og fræðsluáætlun. | Starfsþróunaráætlun birt á heimasíðu skólans. Annað er kynnt fyrir starfsfólki og aðgengilegt á sameiginlegu drifi starfsfólks. |
| Janúar |
Stjórnun og fagleg forysta
Leiðtogahæfni stjórnenda og starfsfólks
Innleiðingaráætlun um skipulag á námi, kennslu og námsmati. |
Innleiðingaráætlun um skipulag á námi, kennslu og námsmati. | Stjórnendur og gæðaráð. | Innleiðingateymi sem í sitja skólastjórnendur og tveir kennarar. | Þegar búið er að útbúa drög að innleiðingaráætlun byggða á leiðsögn MMS. | Farið yfir innleiðingaráætlun á starfsdögum í vor þar sem farið yfir það sem búið er að gera og hvað er framundan næsta skólaár. |
| Febrúar |
Nám og kennsla
Gæði kennslu
Innlit í kennslustundir. |
Innlit í kennslustundir. | Skólastjórnendur og gæðaráð. | Kennarar. | Þegar a.m.k. 90% matsviðmiða eru A – Mjög gott verklag sem samræmist fyllilega lýsingu um gæðastarf. Flestir eða allir þættir sterkir. | Samantekt í skýrslu um innra mat í júní 2026. |
| Mars |
Nám og kennsla
Námsvitund
Nemendaviðtöl. Bætingavika á mið- og unglingastigi. |
Kennaramat. Nemendamat. | Stjórnendur, gæðaráð og kennarar á unglingastigi. | Nemendur og kennarar á unglingastigi. | Þegar a.m.k. 80% kennara og nemenda eru ánægðir með þetta fyrirkomulag. | Samantekt í skýrslu um innra mat í júní 2025. |
| Apríl |
Nám og kennsla
Ábyrgð og þátttaka
Raddir nemenda. Nemendakönnun um bundið val. Tillögur og kosning á nafni á nýjum sal. Kosningar um þarfir á skólalóð og leiktæki. |
Nemendakannanir og kosningar. | Verkefnastjóri UT, nemendaráð og stjórnendur. | Allir nemendur (og stundum starfsfólk). | Þegar þátttaka nemenda er yfir 85%. | Niðurstöður nýttar í innra mati og í ákvörðanatöku um skipulag næsta árs. Sumar niðurstöður kosninga birtar á heimasíðu og fréttabréfum. |
| Maí |
Stjórnun
Mat á starfsáætlun
|
Skólastjórnendur meta í samráði við gæðaráð. | Skólastjóri. | Stjórnendur. | Þegar starfsáætlun er virk og gengur að mestu eftir. Þegar mat er gert á henni að vori og endurskoðun byggð á því. | Samantekt í skýrslu um innra mat í júní 2026. |
| Júní |
Annað samstarf
Samstarf við nærsamfélagið
Tónlistarskóli, löregla, söfn, slökkvilið, björgunarsveitin, eldri borgarar o.fl. |
Rætt og rýnt á stigsfundum. | Stigsstjórar og stjórnendur. | Starfsfólk. | Skólinn sé í góðu samstarfi og tengslum við atvinnulífið og nærsamfélagið allt skólaárið. | Samantekt í skýrslu um innra mat í júní 2026. |
| Allt árið |
Annað samstarf
Samstarf við leikskóla
|
Gátlisti gæðaviðmiða. | Deildarskólastjórnendur, grunnskólakennarar. | Kennarar í samstarfinu og foreldra elstu barna. | Að samstarf sé skipulagt, faglegt og skapandi fyrir börn á báðum skólastigum. | Samantekt í skýrslu um innra mat í júní 2026. |
| Lok árs |
Innra mat
Gerð skýrslu um innra mat og umbótaáætlun
Niðurstöður kannanaprófa, lesfimi og Matsferils. |
Samantekt innra og ytra mats vetrarins. Niðurstöður teknar saman. | Gæðaráð og stjórnendur. Sérkennari og stoðteymi. | Gæðaráð. | Þegar skýrslan er tilbúin og komin í birtingu og lýsir styrkleikum skólans og tækifærum til umbóta. | Birt á heimasíðu skólans, kynnt skólasamfélagi og lögð fyrir skólanefnd. |
