Stefna Hrafnagilsskóla byggir á menntastefnu Eyjafjarðarsveitar og hefur því sömu grundvallargildi, leiðarljós og framtíðarsýn.
Hlutverk Hrafnagilsskóla:
Hrafnagilsskóli hefur það hlutverk að veita menntun á grunnskólastigi eins og hún gerist best á hverjum tíma, að virðing og vingjarnleiki einkenni öll samskipti og að rækta manngildi.
Gildi Hrafnagilsskóla:
Hrafnagilsskóli hefur þrjú megingildi að leiðarljósi í starfi sínu. Þau eru: Fagmennska, dyggðir og skilningur.
Fagmennska
Hrafnagilsskóli vinnur markvisst að því samkvæmt yfirlýstum aðferðum að hver nemandi fái kennslu við hæfi, áhersla er á læsi, útinám, list- og verknám, leiðsagnarnám og nýtingu tækni. Umbótamiðuð vinnubrögð einkenna öll störf og unnið er samkvæmt áætlunum. Stjórnendur bera ábyrgð á innra mati og eru faglegir leiðtogar.
Dyggðir
Skólastarfið byggir á dyggðakennslu þar sem áhersla er á virðingu fyrir öllum, ábyrgri hegðun, góðvild og vingjarnleika í samskiptum.
Skilningur
Skilningur er grundvallarviðhorf í skólasamfélaginu með það að leiðarljósi að allir hafi hið góða í sér og möguleikann til að verða betri manneskjur.
Skólasýn
Allir hafa hið góða í sér og möguleikann til að verða betri manneskjur.
Skólasýn Hrafnagilsskóla felur í sér þann grundvallar skilning að hver og einn búi yfir góðvild og tiltrú. Við lærum af mistökum okkar og getum bætt fyrir misgjörðir. Við leitumst við að verða betri manneskjur í dag en við vorum í gær.
Skólaheit
Ég kem í skólann til að læra og nýta hæfileika mína til fulls
Á samverustund á hverjum morgni fara nemendur sameiginlega með skólaheitið. Þar kemur fram sá ásetningur sem hver og einn þarf að tileinka sér og skilningur á markmiðum skólagöngunnar.
Framtíðarsýn
Sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit leggur áherslu á framúrskarandi, framsækið og skapandi skólastarf þar sem starfsfólk, í góðu samstarfi við foreldra/forsjáraðila, vinnur saman að menntun og farsæld hvers barns.
Grunnskóli er einn af hornsteinum hvers samfélags. Hrafnagilsskóli vill hafa farsæl mótandi áhrif á samfélagið og að litið verði með trausti til alls þess sem þar er gert. Nám og kennsla er þungamiðja skólastarfs og því er mikilvægt að fagfólk komi að öllum störfum sem þar að lúta. Skólinn leggur áherslu á að vera leiðandi og framsækinn þegar kemur að tæknilausnum og nýsköpun. Unnið er með upplýsingatækni, snjalltækni og stafræna miðlun á skynsamlegan og ábyrgan hátt sem leið til skapandi verkefna og nýsköpunar. Skólinn leggur auk þess mikla áherslu á mikilvægi list- og verkgreina til þess að efla nemendur í skapandi hugsun, samvinnuhæfni og frumkvæði sem eru mikilvægir þættir í nútímasamfélagi. Það er metnaðarmál Hrafnagilsskóla að nemendur fái góða menntun, að skólinn sé eftirsóknarverður vinnustaður og að hann sé þekktur fyrir fagmennsku, áreiðanleika og árangur.
Sérkenni Hrafnagilsskóla
Daglegar samverustundir í umsjón stjórnenda eru eitt helsta sérkenni Hrafnagilsskóla. Nemendur í 1. – 7. bekk ásamt kennurum og starfsfólki hefja skóladaginn á samverustund og eru foreldrar og forráðamenn ávallt velkomnir. Samverustundir eru í föstum skorðum allt frá upphafi til enda. Stundin hefst með því að nemendur og starfsfólk bjóða góðan dag og fara með skólaheiti Hrafnagilsskóla. Að lokinni stuttri umfjöllun um t.d. dyggð mánaðarins eða málefni líðandi stundar er atriði frá nemendum, söngur sem tónmenntakennari stýrir og í lokin er nokkurra mínútna kyrrðarstund. Einu sinni í viku er 40 mínútna samverustund á unglingastigi með svipuðu sniði en þar taka unglingarnir þátt í umræðum sem eru ítarlegri en hjá yngri nemendum. Markmið samverustunda er fyrst og fremst að stuðla að dyggðakennslu og skilningi í skólasamfélaginu, að þjálfa nemendur í að koma fram og hlusta á aðra, að syngja saman og byrja daginn saman með hugarró.
Eitt af gildum skólans eru dyggðir en áhersla er á mannbætandi viðhorf og dyggðakennslu í skólanum. Sameiginleg sýn allra sem starfa við skólann er að allir geti bætt sig og byggt er á grunndyggðunum góðvild, ábyrgð og virðingu.
Þar sem skólastarfið byggir á dyggðum og skilningi er lögð mikil áhersla á samræður til náms og lýðræði. Í hverjum bekk eru vikulegir gæðahringir en það eru bekkjarfundir með ákveðnum reglum. Gæðahringir eru gæðastundir og þar læra nemendur að tjá sig, hlusta á aðra, rökræða, bera upp mál, fara í leiki og hrósa hvert öðru.
Leikur, nám og kennsla
Í Hrafnagilsskóla er lögð áhersla á leiðsögn í námi og að nemendur og foreldrar þekki markmið og tilgang námsins. Á öllum aldursstigum er lögð áhersla á samþættingu námsgreina að hluta til, annað hvort vikulega eða í skilgreindum þemum eða verkefnum. List- og verknám fléttast oft inn í bóknám og í kringum árshátíðir og þemadaga eru námsgreinar iðulega samþættar. Allir nemendur skólans fá markvissa danskennslu ár hvert sem lýkur með árlegum danssýningum.
Starfsfólk og stjórnendur skólans leggja áherslu á gott samstarf við heimilin og leita eftir skoðunum foreldra og forráðamanna. Einnig er lögð áhersla á öflugt samstarf við leik- og tónlistarskóla sem og nærsamfélagið og atvinnulífið í Eyjafjarðarsveit.
Eitt af sérkennum Hrafnagilsskóla er áhersla á umhverfismennt og útinám en námið fer oftast fram á útikennslusvæði skólans Aldísarlundi. Í gegnum umhverfismennt og útinám þjálfast nemendur í margvíslegri hæfni en úti reynir á aðra hæfni en innan veggja kennslustofunnar. Umhverfismennt byggir m.a. á grunnþáttum menntunar og má þar helst nefna sjálfbærni, heilbrigði og velferð og sköpun. Útinám er einnig tengt hæfniviðmiðum ólíkra námsgreina ásamt því að þjálfa lykilhæfni sem snýr að nemandanum sjálfum eins og skapandi og gagnrýna hugsun, sjálfstæði og samvinnu.