Fréttir

Fréttir2024-10-25T11:37:28+00:00
Vinnudagur í Hrafnagilsskóla

25.maí 2018|

Foreldrafélag Hrafnagilsskóla í samstarfi við starfsfólk Hrafnagilsskóla stendur fyrir vinnudegi á skólalóðinni laugardaginn 26. maí frá kl 10:00 – kl 14:00 Stefnan er að laga og mála skipið góða og húsin við sandkassann. Hrafnagilsskóli leggur til málningu, annað efni og verkfæri. Elmar og Davíð húsverðir stýra [Meira...]

6. bekkur „plokkar“

27.apríl 2018|

Nemendur 6. bekkjar fræddust um hinn 11 ára og bráðduglega Atla Svavarsson sem hefur vakið mikla athygli fyrir dugnað sinn í að tína rusl.  Forseti Íslands hefur meðal annars sent honum þakkarbréf fyrir dugnaðinn. Eftir smá umfjöllun um þennan magnaða pilt ákváðu nemendur að fara upp í skógarreitinn [Meira...]

Danssýning

20.apríl 2018|

Þriðjudaginn 17. apríl lauk danskennslu yngstu nemendanna með glæsilegri danssýningu í íþróttasal skólans. Þar sýndu nemendur 1. - 4. bekkjar ásamt elstu leikskólabörnunum ýmsa dansa undir stjórn Elínar Halldórsdóttur danskennara. Hér má sjá myndir frá sýningunni.

Danssýning

13.apríl 2018|

Senn lýkur danskennslu hjá nemendum í 1.-4. bekk í Hrafnagilsskóla og elsta árgangi í Krummakoti. Af því tilefni verður danssýning í íþróttahúsi skólans þriðjudaginn 17. apríl kl. 13:00. Þar sýna nemendur hvað þeir hafa lært undanfarnar vikur hjá Elín Halldórsdóttur danskennara. Allir hjartanlega velkomnir.

Árshátíðir mið- og yngsta stigs komnar á netið

23.mars 2018|

Nú hafa nemendur á mið- og yngsta stigi haldið árshátíðir sínar. Þær heppnuðust báðar glimrandi vel og voru nemendum til mikils sóma. Upptökur af þeim eru komnar á netið og hægt er að sjá þær hér að neðan.   Árshátíð yngstastigs 2018 - Álfar Hátíðin var [Meira...]

Go to Top