Nú styttist í að allir starfsmenn Hrafnagilsskóla fari í sumarleyfi. Skrifstofan verður lokuð frá 18. júní - 3. ágúst. Við þökkum nemendum, foreldrum og forráðamönnum, starfsfólki og velunnurum skólans kærlega fyrir skólaárið og minnum á að skólasetning fyrir næsta skólaár verður 23. ágúst klukkan 13:00. Þeim [Meira...]
Hrafnagilsskóli stendur fyrir alþjóðlegum þriggja daga fjarmenntabúðum ásamt grunnskólum frá Þýskalandi og Finnlandi og háskóla í Eistlandi. Menntabúðirnar eru liður í Erasmusverkefni sem Hrafnagilsskóli hefur verið aðili að síðastliðin þrjú ár. Markmið verkefnisins er að finna leiðir til að uppfylla markmið náms með hjálp tækni og [Meira...]
Undanfarin ár hefur stúlkum á unglingastigi verið boðið á viðburð sem nefnist Stelpur og tækni og er á vegum Háskólans í Reykjavík, SKÝ og Samtaka atvinnulífsins. Markmiðið með verkefninu er að vekja áhuga stúlkna á ýmsum möguleikum í tækninámi og störfum, brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem einkennir [Meira...]
Ný reglugerð varðandi grunnskólastarf var send á skólastjórnendur í síðustu viku.Það er ánægjulegt að við getum haldið skólastarfinu áfram á svipuðum nótum og fyrir páska og þurfum ekki að breyta stundaskrá né loka á milli stiga. Skóli hefst að nýju þriðjudaginn 6. apríl eftir stundaskrá. Skólabílar [Meira...]
Fljótt skipast veður í lofti og eins og þið eflaust öll vitið kom fram á ríkisstjórnarfundi um aðgerðir vegna Covid-19 að staðarnám á öllum skólastigum sé óheimilt frá og með miðnætti í kvöld til 1. apríl. Leikskólastig er undanþegið þessari reglugerð.Því verður enginn skóli 25. og [Meira...]
Foreldrafélög Hrafnagilsskóla og leikskólans Krummakots afhentu skólunum glæsilega gjöf á dögunum til útikennslu í Aldísarlundi. Það er færanleg útieldunarstöð. Henni fylgir ketill, panna, grind og lummupanna. Gjöfin mun nýtast nemendum beggja skóla vel og bæta aðstöðu til útikennslu til muna.Takk fyrir góða gjöf.