Hrafnagilsskóla verður slitið í 40. sinn mánudaginn 30. maí kl. 20 í íþróttahúsi skólans. Skólastjóri.
Hér kemur kynningarplakat frá Minjasafninu á Akureyri. Minjasafnið stendur námskeiði í sumar. Markmið námskeiðsins er að börnin lesi sér til ánægju í allt sumar og efla færni barnanna í að lesa í minjar, umhverfi, sögu og listir. Sumarlestur Akureyri - bærinn minn
Þriðjudaginn 31. maí verður haldið málþing í menningarhúsinu Hofi um skaðsemi kannabis. Nánari upplýsingar er að finna í meðf. auglýsingu. Bara gras?
Á miðvikudaginn 18. maí fór 4. bekkur í dags ferðalag til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Byrjað var á því að heimsækja 4. bekk Grunnskóla Ólafsfjarðar en síðan var haldið til Siglufjarðar og Síldarminjasafnið skoðað. Þar var farið í ratleik og ýmislegt skemmitlegt skoðað. Einnig borðuðum við [Meira...]
Kór Hrafnagilsskóla hélt sína árlegu vortónleika í dag og stóðu börnin sig vel að venju. Ánægjulegt var að sjá hversu margir sáu sér fært að koma og hlusta. Sem fyrr stjórnaði María Gunnarsdóttir kórnum og undirleikari var Jakub Kolosowski.
Í morgun fóru nemendur og kennarar 1. bekkjar saman í sveitarferð inn á Hrafnagil. Þar sáu þau hryssur með folöldin sín og ærnar með lömbin sín. Þau kíktu í hesthúsið og sáu hestana í stíunum sínum og í fjósinu sáu þau alla litlu kálfana. Hænurnar voru [Meira...]
