Frístund

Frístund skólaárið 2026–2027

Frístund er starfrækt í Hrafnagilsskóla. Þar býðst nemendum í 1.–4. bekk að dvelja eftir skóla frá kl. 14:00 til kl. 16:00. Foreldrar og forráðamenn geta valið um þrenns konar dvalartíma:

  • allir dagar milli kl. 14:00 og 16:00
  • þrír ákveðnir dagar í viku milli kl. 14:00 og 16:00
  • tveir ákveðnir dagar í viku milli kl. 14:00 og 16:00

Verðskrá

Dvalartími Frístundargjald Síðdegishressing Samtals
Full frístund 14.230 kr. 3.301 kr. 17.531 kr.
Frístund 3 daga í viku 8.538 kr. 1.980 kr. 10.518 kr.
Frístund 2 daga í viku 5.692 kr. 1.320 kr. 7.012 kr.

Boðið er upp á síðdegishressingu í frístund. Tímagjald er 327 kr. á klukkustund og síðdegishressing kostar 171 krónu. Hækkun frá síðasta skólaári er 2,5% skv. ákvörðun sveitarstjórnar vorið 2026.

Ekki er dregið frá mánaðargjaldi þótt barn sé veikt eða í leyfi einhverja daga. Foreldrar og forráðamenn geta þó sótt sérstaklega um niðurfellingu gjalda ef veikindi vara lengur en 2 vikur samfellt. Greiðsluseðlar eru sendir út mánaðarlega.

Systkinaafsláttur er samtengdur milli leikskóla og frístundar. Til að njóta afsláttar þurfa börnin að vera skráð á kennitölu sama forráðamanns (greiðanda) og með sama lögheimili.

Starfsfólk

Starfsmenn frístundar eru: Arnór Gauti Kristinsson, Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Bjarney Guðbjörnsdóttir og Marta Þórudóttir.

Eins og áður er í boði að starfsfólk frístundar aðstoði börn við að mæta á íþróttaæfingar hjá U.m.f. Samherjum, óski foreldrar og forráðamenn þess.

Athugið: Sækja þarf börnin í síðasta lagi kl. 16:00 en þá er lokað í frístund.

Breytingar á dvalartíma

Afar mikilvægt er að tilkynna tímanlega til ritara tilfallandi breytingar á dvalartíma, t.d. ef barn á að koma heim strax að skóla loknum eða er að fara í heimsókn til annars barns.

Hægt er að breyta mánaðarlegri skráningu með því að senda tölvupóst á nanna@krummi.is fyrir 25. næsta mánaðar á undan og tilgreina dvalartíma barnsins. Sé ekki haft samband er litið svo á að um óbreyttan tíma verði að ræða.

Samband við frístund
Sími: 464-8103 og 868-8103 (eftir kl. 14:00)
Netfang: nanna@krummi.is

Skóladagatal frístundar 2026–2027

Dagsetning Tilefni Frístund
24. ágúst Skólasetning Lokuð
1. september Útivistardagur Opin
28. september Foreldraviðtalsdagur Opin kl. 8:00–16:00 *
23. október Starfsdagur Lokuð
26.–27. október Vetrarfrí Lokuð
16. nóvember Dagur íslenskrar tungu Opin
18. desember Litlu jólin Lokuð
19. des.–3. jan. Jólaleyfi Lokuð
4. janúar Starfsdagur Lokuð
25. janúar Starfsdagur Lokuð
26.–27. janúar Foreldraviðtalsdagar Opin kl. 8:00–16:00 *
10. febrúar Öskudagur / starfsdagur Lokuð
11.–12. febrúar Vetrarfrí Lokuð
2. mars Útivistardagur Opin
20.–29. mars Páskaleyfi Lokuð
23. apríl Starfsdagur Lokuð
4. júní Síðasti skóladagur nemenda Opin

* Skrá þarf börn hjá starfsmönnum frístundar eða ritara þá daga sem eru stjörnumerktir og greitt er sérstaklega fyrir þá.