• Published On: 1.mars 2022

    Eins og venjulega var mikið um dýrðir á sprengidagshátíð grunnskólans. Kynjaverur af öllum stærðum og gerðum svifu um skólann ýmist í draugaherbergjum, hjá spákonum, í marseringu eða borðandi pitsur. Að sjálfsögðu var kötturinn sleginn úr tunnunni. Myndir frá hátíðinni.

Editor’s pick
  • Þemadagar hófust í dag en í ár er þemað Heilbrigði og velferð. Mikið fjör var í skólanum í morgun, nemendur lærðu sjálfsvörn hjá Hans og Óda, fengu handarnudd hjá Ingu og sumir fóru í jóga hjá Helgu Haraldsóttur.

  • Í næstu viku verða hinir árlegu þemadagar. Að þessu sinni er þemað, heilbrigði og velferð sem er einn af sex grunnþáttum skólastarfs samkvæmt nýrri aðalnámskrá. Á þemadögum verður hefðbundið skólastarf brotið upp og nemendur vinna í blönduðum hópum að ýmsum verkefnum. Meðal þess sem boðið er upp á er fjölbreytt hreyfing t.d. leikir, dans og [Meira...]

  • Hér að neðan eru niðurstöður samræmdra prófa í 10. bekk í Hrafnagilsskóla haustið 2013. Einkunnir í stærðfræði eru skv. nýrri Aðalnámskrá gefnar í A, B, C og D í stað talna áður. Samanburður við landsmeðaltal og Norðurland eystra er einnig sýndur.   Íslenska Enska Stærð-fræði Einkunn Raðtala Einkunn Raðtala Raðtala  Hrafnagilsskóli 5,8 47,7 6,8 50,5 60,1 [Meira...]