Ár hvert reynum við að hugsa út fyrir boxið og finna upp á einhverju sem við alla jafna gerum ekki í venjulegri yngri barna kennslu með nemendum okkar. Þar sem við erum almennt með skapandi og fjölbreytta kennsluhætti tekur smá stund að teygja ímyndunaraflið lengra. En í kennarahópi þar sem gróskan fær sín notið gerast oft undur skemmtilegir hlutir.
Við fengum yfirheitið “bækur” í hendurnar og eftir nokkra umhugsun ákváðum við að “toga sögupersónurnar út úr bókunum” og leggja áherslu á að lesa fyrir börnin og fá þeim skapandi verkefni. Við völdum sögupersónur íslenskra barnabókahöfunda sem nemendur okkar þekkja. Við skiptum 73 nemendum í 6 aldursblandaða hópa og hver hópur fékk þrjá fyrriparta í skólanum til að vinna fjölbreytt verkefni út frá sinni sögupersónu ásamt því að “toga hana út úr bókinni” og koma henni fyrir á “framtíðarstað” á yngsta stigs ganginum þar sem við vonum að sögupersónurnar ná að kveikja neista nemenda og löngun til að lesa allar þær bækur sem þessir undur skemmtilegu íslensku karakterar koma við sögu.
Hér sjáið þið 6 flipa með afrakstri hvers hóps fyrir sig bæði í myndum og fréttaþætti sem nemendur úr 4. bekk tóku að sér að útbúa fyrst að hátíðin gat ekki farið fram í íþróttahúsinu í ár, út af dottlu! Við vonum svo að þið gerið ykkur sérstaka ferð til okkar við fyrsta tækifæri og lítið þetta eigin augum, svona um leið og veiran fer að hopa. Njótið afrakstursins. Bestu kveðjur frá öllum á yngsta stigi ásamt Rebekku smíðakennara og Katrínu textílkennara sem fá sérstakar þakkir fyrir sitt framlag í þessa vinnu.