Sveitasæla Hrafnagilsskóla hlýtur Foreldraverðlaun Heimilis og skóla
Það var hátíðleg stund í Herkastalanum sl. fimmtudag þegar Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent. Við í Hrafnagilsskóla erum gríðarlega stolt af því að tilraunaverkefnið Sveitasæla hlaut verðlaunin að þessu sinni en þau eru veitt fyrir verkefni sem stuðla að öflugu samstarfi heimila og skóla.
Eins og fjallað var um í frétt um valgreinina Sveitasælu fyrir skömmu hófst verkefnið í vetur að frumkvæði hjónanna Berglindar og Jóns á bænum Hrafnagili. Í rökstuðningi fyrir verðlaununum var dregið fram að Sveitasæla gæfi nemendum á unglingastigi einstakt tækifæri til að læra af reynslu og kynnast sínu nærumhverfi á nýjan hátt.
Undir leiðsögn bændanna og Óðins Ásgeirssonar kennara hafa nemendur tekið þátt í fjölbreyttum bústörfum, allt frá sauðburði og rúningi yfir í að fylgjast með störfum dýralækna og frjótækna. Þannig öðlast nemendur dýrmæta innsýn í landbúnað, sem er einn af mikilvægustu atvinnuvegum samfélagsins.
Í umsögn lögðu Heimili og skóli sérstaka áherslu á hve dýrmætt framlag bændanna á Hrafnagili er. Þau hafa sýnt mikinn metnað í skipulagningu og „einstakan vilja til samstarfs og miðlunar þekkingar“. Framlag þeirra er bæði óeigingjarnt og ómetanlegt fyrir nemendur og skólasamfélagið allt.
Við í Hrafnagilsskóla óskum Berglindi, Jóni, Óðni og öllum sem komu að verkefninu innilega til hamingju með þessa glæsilegu viðurkenningu!