Sveitasæla – samstarf við Berglindi og Jón Elvar á Hrafnagili

Í vetur var ákveðið að fara af stað með tilraunaverkefni á unglingastigi í samstarfi við hjónin Berglindi og Jón Elvar á Hrafnagili. Verkefnið er hluti af svokölluðu bundnu vali sem eru 80 mínútna lotur einu sinni í viku. Í bundnu vali er nemendum á unglingastigi skipt í fimm aldursblandaða hópa, um 12–14 nemendur eru í hverjum hópi. Hver hópur fer í sjö skipti á hverja stöð. Stöðvarnar eru: Betri líðan, náms- og starfsfræðsla, tónlist, heimilisfræði og sveitasæla. Óðinn Ásgeirsson kennari hefur umsjón með sveitasælunni en á þeirri stöð taka hjónin Jón Elvar og Berglind á móti hópunum en þau eru bændur og búa á bænum Hrafnagili sem er í göngufjarlægð við skólann. Nemendur taka þátt í hefðbundnum bústörfum á bænum og tilfallandi verkefnum sem geta verið árstíðabundin og njóta leiðsagnar og fræðslu frá Berglindi og Jóni Elvari.

Dæmi um verkefni og störf sem nemendur fá að kynnast eru t.d. umhirða sauðfjár eins og rúningur, klaufasnyrtingar, sauðburður og fleira. Einnig má nefna að nemendur hafa sinnt kálfum en í því felst að gefa þeim mjólk, fóðurbæti og hey og halda vistarverum þeirra snyrtilegum. Nemendur hafa fengið að fylgjast með störfum frjótækna, dýralækna og iðnaðarmanna sem sinna viðhaldi á bænum. Að auki hafa nemendur sett niður kartöflur og farið í berjamó ásamt mörgum fleiri verkum.

Ávinningur af verkefni eins og þessu er margþættur. Nemendur læra mjög margt sem ekki er hægt að læra af bókum og fá tækifæri til að kynnast sínu nærumhverfi. Einnig er þetta ómetanlegt tækifæri fyrir nemendur til þess að kynnast störfum bænda og afleiddum störfum. Þannig er þetta mikilvægur þáttur í starfsfræðslu ekki síst í ljósi þess að landbúnaður er mikilvægur atvinnuvegur í sveitarfélaginu og landinu öllu.

Berglind og Jón áttu frumkvæðið að þessu samstarfi og hafa séð um skipulagningu og utanumhald í allan vetur. Þau eru einstaklega viljug til þess að miðla af sinni þekkingu og hafa sýnt í verki að þeim er verkefnið mikilvægt og kært. Framlag þeirra er því bæði óeigingjarnt og ómetanlegt fyrir okkur í Hrafnagilsskóla.