Fréttir

Fréttir2024-10-25T11:37:28+00:00
Skólasetning

4.ágúst 2015|

Hrafnagilsskóli verður settur mánudaginn 24. ágúst kl. 13:00 í íþróttahúsinu. Eftir skólasetninguna kynna umsjónarkennarar starf skólaársins í heimastofum bekkjanna. Mikilvægt er að foreldrar mæti með börnum sínum. Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir í viðtöl með foreldrum/forráðamönnum en mæta einnig á skólasetninguna. Þeir foreldrar sem ætla að [Meira...]

Skólaslit Hrafnagilsskóla

1.júní 2015|

Skólaslit Hrafnagilsskóla fara fram í íþróttahúsinu fimmtudaginn 4. júní kl. 20:00. Fólk er beðið að huga að því hvort skólabækur eða bókasafnsbækur hafi gleymst heima og koma þeim til skila. Einnig eru þeir sem eiga eftir og ætla að skila UNICEF-áheitum hvattir til að skila þeim [Meira...]

Þemadagar í Hrafnagilsskóla

1.júní 2015|

Í síðustu viku voru þemadagar í Hrafnagilsskóla. Nemendum var skipt upp í aldursblandaða hópa og unnin voru skemmtileg verkefni bæði úti og inni. Meðal annars var útbúin stór fuglahræða sem stendur á skólalóðinni og verður framlag skólans til fuglahræðusýningar í Eyjafjarðarsveit í tengslum við Handverkshátíð. Allir [Meira...]

UNICEF hreyfing til góðs

29.maí 2015|

Þriðjudaginn 26. maí var árlegur UNICEF dagur í Hrafnagilsskóla. Þann dag hreyfa nemendur sig á ýmsa vegu og safna áheitum frá vinum og ættingjum. Peningarnir eru nýttir til að aðstoða börn úti í heimi sem eru hjálparþurfi. Nemendur gátu valið um að bera drumba eða vatnsbrúsa, [Meira...]

Sýnismöppudagur

22.maí 2015|

Þriðjudaginn 26. maí verður sýnismöppudagur í Hrafnagilsskóla. Þann dag bjóða nemendur í 1.- 4. bekk, 6. og 8. bekk foreldrum sínum að koma og skoða sýnismöppur þeirra. Í þær safna nemendur sýnishornum af skólaverkefnum. Sama dag fer fram kynning á verkefnum nemenda í 5. og 7. [Meira...]

Málþing nemenda á unglingastigi

19.maí 2015|

Föstudaginn 8. maí héldu nemendur unglingastigs í Hrafnagilsskóla málþing. Málþingið var haldið á Bókasafni Eyjafjarðarsveitar og var opið starfsfólki og foreldrum. Markmiðið með þessari vinnu var annars vegar þjálfun í ritun og hins vegar að þjálfa framsögn og framkomu. Nemendur 8. bekkjar sögðu frá áhugamálum sínum, [Meira...]

Go to Top