Hrafnagilsskóli er grunnskóli sem er staðsettur í Eyjafjarðarsveit. Það eru um það bil 150 nemendur í skólanum og að mínu mati er þetta frábær skóli. Þrátt fyrir það hefur skólinn sína kosti og galla eins og aðrir skólar. Fyrsti kosturinn er að í skólanum [Meira...]
Mánudaginn 16. nóvember verður Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur í Hrafnagilsskóla. Hátíðin hefst klukkan 13:00 í íþróttasal skólans og stendur til kl. 14:45. Nemendur munu flytja atriði í tali og tónum sem tengjast þema dagsins en í þetta skiptið er það vatn. Einnig munu nemendur 7. [Meira...]
Nemendur unglingastigs fengu allir það verkefni á haustönn að skrifa 3-400 orða pistil um skólann eða skólastarfið. Greinarnar gilda 20% af lokaeinkunn haustannar í íslensku og nemendur hafa lagt sig alla fram við skrifin. Við ætlum að birta greinarnar hér á heimsíðu skólans svo fleiri geti [Meira...]
Alla síðustu viku fluttu nemendur Tónlistarskóla Eyjafjarðarsveitar tónlistaratriði á samverustundum yngsta- og miðstigs. Nemendur stóðu sig mjög vel og viljum við þakka Tónlistarskólanum og kennurunum þar fyrir þetta góða samstarf.
Við viljum benda á áhugaverða síðu um hreyfifærni barna. Þar er að finna hugmyndir að viðfangsefnum og æfingar til að hvetja börn áfram í umhverfi sínu. Einnig er þar að finna góðar hugmyndir að samverustundum fyrir fjölskyldur. Hér er hlekkurinn inn á síðuna
Í dag var haldin rýmingaræfing en öllum skólum ber að halda slíka æfingu að minnsta kosti einu sinni á ári. Öryggisráð skólans sér um að rýmingaráætlun sé uppfærð og endurskoðuð og að slíkar æfingar séu haldnar. Í öryggisráði skólans sitja Hrund skólastjóri, Davíð húsvörður og Tryggvi [Meira...]
