Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, fimmtudaginn 10. mars og hefst kl. 20:00. Boðið verður upp á tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Eyjafjarðar og nemendur í 5., 6. og 7. bekk sýna stytta útgáfu af leikritinu ,,Konungi ljónanna“. Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og [Meira...]
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin þriðjudaginn 1. mars í Hrafnagilsskóla. Fulltrúar frá Grenivíkurskóla, Hrafnagilsskóla, Valsárskóla og Þelamerkurskóla kepptu í upplestri, tveir frá hverjum skóla. Hver lesari las sögubrot úr sögunni „Flugan sem stöðvaði stríðið“ eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, ljóð eftir Guðmund Böðvarsson og ljóð að eigin vali. [Meira...]
Árlega er haldin upplestrarkeppni í grunnskólum landsins þar sem þar sem nemendur í 7. bekk æfa sig í upplestri. Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Mánudaginn 22. febrúar var keppnin haldin hér í skólanum. Allir nemendur í [Meira...]
Þriðjudaginn 23. fóru nemendur og starfsfólk Hrafnagilsskóla í skíðaferð í Hlíðarfjall. Veðrið var dásamlegt og létu nemendur smá kul ekki stoppa sig og renndu sér á skíðum, brettum og sleðum fram yfir hádegi. Dýrindis nesti kom frá Valda kokki og starfsstúlkum hans í mötuneytinu og kakóið og pítsusnúðarnir bragðast hvergi [Meira...]
Einu sinni í mánuði koma allir nemendur skólans saman á sameiginlegri samverustund. Í dag sáu nemendur í 1. og 10. bekk um sameiginlegt atriði. Nemendur 10. bekkjar rifjuðu upp kunnáttu sína á blokkflautur og saman spiluðu þau lagið Blokkingarnir. Hér má sjá upptöku af samspilinu. https://www.youtube.com/watch?v=E-5MZesN0lU
Heimkeyrsla verður með eðlilegum hætti í dag, þriðjudaginn 16. febrúar.
