Sú skemmtilega hefð hefur skapast á unglingastigi að halda spurningakeppnina ,,Gettu betur“ á síðasta kennsludegi fyrir páskaleyfi. Þrír fulltrúar frá hverjum bekk á unglingastigi spreyta sig á hraðaspurningum, látbragðsleik, bjölluspurningum og vísbendingaspurningum. Að þessu sinni unnu nemendur í 9. bekk þau Fannar Smári Sindrason, Kolbrá Brynjarsdóttir [Meira...]
Miðvikudaginn 16. mars fór fram íþróttakeppnin Skólahreysti í Íþróttahöllinni. Þar kepptu fulltrúar grunnskóla Akureyrar og nágrennis sín á milli. Fyrir hönd Hrafnagilsskóla kepptu Jón Smári Hansson, Jakob Ernfelt Jóhannesson, Birta Rún Randversdóttir og Ísabella Sól Tryggvadóttir. Varamenn voru Haraldur Helgason og Sólveig Lilja Einarsdóttir. Keppendur stóðu [Meira...]
Við erum svo heppin að skólinn okkar er staðsettur í umhverfi sem skemmtilegt er að nýta til útikennslu. Hægt er að gera fjölbreytt verkefni utandyra sem reyna á ýmis konar færni nemenda og eru skemmtileg. Meðfylgjandi eru myndir af nemendum á yngsta stigi í útikennslu. [Meira...]
Allir nemendur Hrafnagilsskóla fá 12 danstíma á hverjum vetri. Elín Halldórsdóttir, danskennari, sér um kennsluna og nú í vikunni lauk kennslu hjá nemendum í 1.-5. bekk og elsta árgangi leikskólans Krummakots. Í lok hverrar kennslulotu er foreldrum og forráðmönnum boðið á danssýningu þar sem nemendur sýna [Meira...]
Fimmtudaginn 10. mars var árshátíð miðstigs haldin í Laugarborg. Þar sýndu nemendur 5., 6. og 7. bekkjar stytta útgáfu af leikritinu ,, Konungi ljónanna“ og tókst sýningin í alla staði vel. Nemendur blómstruðu á sviðinu, sungu, dönsuðu og léku. Áður höfðu þeir útbúið leiksmynd, búninga og [Meira...]
Senn lýkur danskennslu hjá nemendum í 1.-5. bekk í Hrafnagilsskóla og elsta árgangi í Krummakoti. Af því tilefni verður danssýning í íþróttahúsi skólans þriðjudaginn 15. mars kl. 13:10. Þar sýna nemendur hvað þeir hafa lært undanfarnar vikur hjá Elín Halldórsdóttur danskennara. Allir hjartanlega velkomnir.
