Í útikennslu í dag fóru nemendur í 2. bekk í Aldísarlund og vígðu nýja eldstæðið. Eldstæðið reyndist afar vel og greinabrauðin sem nemendur bökuðu runnu ljúflega niður. Uppbygging eldstæðisins er fyrsti áfangi í því að gera Aldísarlundinn að enn betra útivistarsvæði.
Um helgina mættu nokkrar galvaskar fjölskyldur upp í Aldísarlund og hjálpuðust að við að koma upp nýju eldstæði. Fulltrúar í stjórn foreldrafélagsins voru í forsvari og erum við í Hrafnagilsskóla afar þakklát fyrir þetta frábæra framtak og hlökkum til að nýta okkur þetta nýja eldstæði. [Meira...]
Árshátíð yngsta stigs var haldin í Laugarborg þriðjudaginn 19. apríl. Hún hófst á því að ,,stórsveit“ 4. bekkjar lék tvö lög og gaman var að sjá afraksturinn en Eyjafjarðarsveit býður öllum nemendum 4. bekkjar að læra á hljóðfæri einn vetur. Sýningin fjallaði um himingeiminn og verur [Meira...]
Dagana 25. – 29. apríl stendur yfir skráning nýrra nemenda í Hrafnagilsskóla. Foreldrar eða forráðamenn eru beðnir að skrá tilvonandi 1. bekkinga (börn fædd 2010) og einnig eldri nemendur sem væntanlegir eru í skólann næsta haust. Á sama tíma er tekið á móti tilkynningum um flutning [Meira...]
Hátíðin verður haldin í Laugarborg þriðjudaginn 19. apríl frá klukkan 14:00—16:00. Tónlistaratriði verður í flutningi nemenda 4. bekkjar og síðan er sýning sem fjallar um himingeiminn og verur sem í honum búa. Að loknum skemmtiatriðum stjórnar Elín Halldórsdóttir dansi. Aðgangseyrir er 700 kr. fyrir nemendur á [Meira...]
Í vikunni var í fyrsta skipti boðið upp á svokallað Legoval í Hrafnagilsskóla. Legoið sem notað er í valinu er svokallað Lego Mindstorm sem byggir á því að smíða ýmiskonar vélmenni úr Legoi og forrita þau síðan til að leysa ýmsar þrautir. Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi styrkti skólann [Meira...]
