Fréttir

Fréttir2024-10-25T11:37:28+00:00
Árshátíð miðstigs

18.mars 2016|

Fimmtudaginn 10. mars var árshátíð miðstigs haldin í Laugarborg. Þar sýndu nemendur  5., 6. og 7. bekkjar stytta útgáfu af leikritinu ,, Konungi ljónanna“ og tókst sýningin í alla staði vel. Nemendur blómstruðu á sviðinu, sungu, dönsuðu og léku. Áður höfðu þeir útbúið leiksmynd, búninga og [Meira...]

Danssýning

14.mars 2016|

Senn lýkur danskennslu hjá nemendum í 1.-5. bekk í Hrafnagilsskóla og elsta árgangi í Krummakoti. Af því tilefni verður danssýning í íþróttahúsi skólans þriðjudaginn 15. mars kl. 13:10. Þar sýna nemendur hvað þeir hafa lært undanfarnar vikur hjá Elín Halldórsdóttur danskennara. Allir hjartanlega velkomnir.

Árshátíð miðstigs 2016

7.mars 2016|

Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, fimmtudaginn 10. mars og hefst kl. 20:00. Boðið verður upp á tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Eyjafjarðar og nemendur í 5., 6. og 7. bekk sýna stytta útgáfu af leikritinu ,,Konungi ljónanna“. Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og [Meira...]

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

2.mars 2016|

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin þriðjudaginn 1. mars í Hrafnagilsskóla. Fulltrúar frá Grenivíkurskóla, Hrafnagilsskóla, Valsárskóla og Þelamerkurskóla kepptu í upplestri, tveir frá hverjum skóla. Hver lesari las sögubrot úr sögunni  „Flugan sem stöðvaði stríðið“ eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, ljóð eftir Guðmund Böðvarsson og ljóð að eigin vali. [Meira...]

Upplestrarkeppnin 2016

26.febrúar 2016|

Árlega er haldin upplestrarkeppni í grunnskólum landsins þar sem þar sem nemendur í 7. bekk æfa sig í upplestri. Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Mánudaginn 22. febrúar var keppnin haldin hér í skólanum. Allir nemendur í [Meira...]

Frábær skíðaferð

26.febrúar 2016|

Þriðjudaginn 23. fóru nemendur og starfsfólk Hrafnagilsskóla í skíðaferð í Hlíðarfjall. Veðrið var dásamlegt og létu nemendur smá kul ekki stoppa sig og renndu sér á skíðum, brettum og sleðum fram yfir hádegi. Dýrindis nesti kom frá Valda kokki og starfsstúlkum hans í mötuneytinu og kakóið og pítsusnúðarnir bragðast hvergi [Meira...]

Go to Top