Þurfi nemandi leyfi í þrjá heila skóladaga eða lengur skal forráðamaður hans sækja skriflega um leyfi til skólastjórnenda. Umsjónarkennari og ritari geta veitt leyfi í einn til tvo daga og þarf ekki að sækja um það skriflega.
Í 15. gr. í lögum um grunnskóla nr. 91 frá árinu 2008 segir: „Sæki foreldrar skólaskylds barns um tímabundna undanþágu þess frá skólasókn í einstökum námsgreinum eða að öllu leyti er skólastjóra heimilt að veita slíka undanþágu telji hann til þess gildar ástæður. Foreldrar skulu þá sjá til þess að nemandinn vinni upp það sem hann kann að missa úr námi meðan á undanþágu stendur.“