Ef allt gengi sinn vanagang hefðum við verið með þemadaga í síðastliðinni viku sem hefðu endað með uppskeruhátíð á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Nú var ekki hægt að halda stóra hátíð en í staðinn gerðum við okkur glaðan dag. Í hverri kennslustofu var lítil stofuhátíð þar sem nemendur gæddu sér á múffum og svala og horfðu á myndband sem allir bekkir lögðu innlegg í síðustu daga.
Hér getið þið séð afraksturinn:
Á unglingastigi skiluðu nemendur myndbandi um stöðu íslenskunnar. Nemendum var skipt í hópa og áttu að velta fyrir sér spurningum eins og:
- Er mikilvægt fyrir smáþjóð eins og Ísland að hafa sitt eigið tungumál, af hverju/af hverju ekki?
- Hverjar eru helstu ógnir við íslenska tungu? Hver er ykkar skoðun á málinu? Hvaða rök getið þið fært fyrir þeirri skoðun? En gegn henni?
- Hvað getum við gert til að minnka áhrif enskunnar? Þurfum við þess?
- Hver eru áhrif snjalltækjanna á íslenskuna, eru þau góð eða slæm?
- Hverjar haldið þið að framtíðarhorfur íslenskunnar séu, hvernig verður íslenskan eftir 100 ár?
Hér getið þið séð afrakstur vinnu þeirra. Sum myndböndin eru í myndbandinu hér að ofan.
- Minna Kristín, Óskar Helgi og Anna Sylvía
- Sindri, Jökull Benóný Atli Valur og Enok Atli
- Ari Emin, Trausti Freyr, Þór Dan og Kristófer Alex
- Anna Keita, Matthildur Eir, Margrét Dana og Emilía Dagbjört
- Gabriel Lukas – Björgvin Hrafn – Hallgrímur Ævar og Eyvar Örn
- Aron Máni – Marvin Páll – Ýmir Logi og Gabríel Snær
- Friðrika Ólöf – Berglind Heiða – Gabriele og Ingrid Os
- Marselína – Marín – Urður og Kara
- Ívar Arnbro – Fannar Nói og Eyþór
- Trausti – Bergvin – Alex og Pétur