Miðvikudaginn 25. janúar lenti þyrla Landhelgisgæslunnar óvænt á skólalóð Hrafnagilsskóla. Nemendur og starfsfólk skólans ruku upp til handa og fóta enda vissi enginn hvert erindið væri. Í ljós kom að um æfingu var að ræða hjá Landhelgisgæslunni og sérsveit lögreglunnar. Augljóslega voru nemendur mjög spenntir og fylgdust með viðburðinum sem varð nemendum uppspretta ýmissa skapandi verkefna.