20160316_125026_HDRMiðvikudaginn 16. mars fór fram íþróttakeppnin Skólahreysti í Íþróttahöllinni. Þar kepptu fulltrúar grunnskóla Akureyrar og nágrennis sín á milli. Fyrir hönd Hrafnagilsskóla kepptu Jón Smári Hansson, Jakob Ernfelt Jóhannesson, Birta Rún Randversdóttir og Ísabella Sól Tryggvadóttir. Varamenn voru Haraldur Helgason og Sólveig Lilja Einarsdóttir. Keppendur stóðu sig með strakri prýði í óvenju jafnri keppni milli skólanna.