Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin þriðjudaginn 1. mars í Hrafnagilsskóla. Fulltrúar frá Grenivíkurskóla, Hrafnagilsskóla, Valsárskóla og Þelamerkurskóla kepptu í upplestri, tveir frá hverjum skóla. Hver lesari las sögubrot úr sögunni „Flugan sem stöðvaði stríðið“ eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, ljóð eftir Guðmund Böðvarsson og ljóð að eigin vali. Fulltrúar Hrafnagilsskóla í Stóru upplestrarkeppninni frá síðasta skólaári þær Birta Rún Randversdóttir og Kristbjörg Heiður Kristjánsdóttir lásu upp kynningu á skáldum keppninnar. Dómarar voru Bryndís Símonardóttir, Ingibjörg Einarsdóttir, formaður Radda – samtaka um vandaðan upplestur og framsögn og Sveinn Rúnar Sigmundsson.
Allir lesarar stóðu sig með prýði og var dómurum vandi á höndum. Veittar eru viðurkenningar fyrir þrjú efstu sætin en þau skipuðu að þessu sinni:
- Klara Sjöfn Gísladóttir frá Grenivíkurskóla.
- Svanhildur Marín Valdimarsdóttir frá Valsárskóla.
- Áslaug María Stephensen frá Hrafnagilsskóli.
Til að gera lokakeppnina sem hátíðlegasta voru tvö tónlistaratriði á dagskrá. Birkir Blær Óðinsson spilaði og söng lag sem hann flytur í söngkeppni grunnskóla sem haldin verður í Reykjavík um næstu helgi. Einnig spilaði þjóðlagasveit Tónlistarskóla Eyjafjarðar eitt lag en hana skipa þær Sóley Anna Jónsdóttir, Áslaug María Stephensen, Eva Líney Reykdal og Kristbjörg Heiður Kristjánsdóttir.
[fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“]





























