Frístund skólaárið 2025-2026

Frístund er starfrækt í Hrafnagilsskóla. Þar býðst nemendum í 1. – 4. bekk að dvelja
eftir skóla frá kl. 14:00 til kl. 16:00. Það skal tekið fram að sækja þarf börnin í síðast
lagi kl. 16:00 en þá er lokað í frístund.

Foreldrar og forráðamenn geta valið um þrenns konar dvalartíma. Þeir eru;

  • allir dagar milli kl. 14:00 og 16:00.
  • þrír ákveðnir dagar í viku milli kl. 14:00 og 16:00.
  • tveir ákveðnir dagar í viku milli kl. 14:00 og 16:00.

Verð í frístund eru eftirfarandi:

Frístundargjald Síðdegishressing Samtals
Full frístund 13.883 3.220 17.103
Frístund í 3 daga í viku 8.330 1.932 10.262
Frístund í 2 daga í viku 5.553 1.288 6.841

Boðið er upp á síðdegishressingu í frístund.

Tímagjald er 319 kr. á klukkustund og síðdegishressing kostar 167 krónur. Hækkun
frá síðasta skólaári er 4,0%.

Ekki er dregið frá mánaðargjaldi þótt barn sé veikt eða í leyfi einhverja daga.
Foreldrar og forráðamenn geta þó sótt sérstaklega um niðurfellingu gjalda ef veikindi
vara lengur en 2 vikur samfellt. Greiðsluseðlar eru sendir út mánaðarlega.

Systkinaafsláttur er samtengdur milli leikskóla og frístundar. Til að njóta afsláttar
þurfa börnin að vera skráð á kennitölu sama forráðamanns (greiðanda) og með
sama lögheimili.

Starfsmenn frístundar eru: Arnór Gauti Kristinsson, Bjarkey Birta Gissurardóttir,
Marta Þórudóttir og Thelma Rán Brynjarsdóttir.

Eins og áður er það í boði að starfsfólk frístundar aðstoði börn við að mæta á
íþróttaæfingar hjá U.m.f. Samherjum óski foreldrar og forráðamenn þess.

Afar mikilvægt er að tilkynna tímanlega til ritara tilfallandi breytingar á dvalartíma
t.d. ef barn á að koma heim strax að skóla loknum eða er að fara í heimsókn til
annars barns.

Hægt er að breyta mánaðarlegri skráningu með því að senda tölvupóst á
nanna@krummi.is fyrir 25. næsta mánuð á undan og tilgreina dvalartíma barnsins.
Sé ekki haft samband er litið svo á að um óbreyttan tíma verði að ræða.

Hægt er að hafa samband við starfsmenn í síma 464-8103 og 868-8103 eftir klukkan
14:00 og einnig er hægt að senda póst á nanna@krummi.is.

Frístund 2025-2026

  • 22. ágúst – skólasetning, frístund lokuð.
  • 2. sept. – útivistardagur, frístund opin.
  • 29. sept. – foreldraviðtalsdagur, frístund opin frá kl. 8:00-16:00 *
  • 16. og 17. okt. – starfsdagar, frístund lokuð.
  • 20. og 21. okt. – vetrarfrí, frístund lokuð.
  • 14. nóv. – dagur íslenskrar tungu – frístund opin.
  • 19. des. – litlu jólin, frístund lokuð.
  • 20. des.- 1. jan., jólaleyfi, frístund lokuð.
  • 2. jan. – starfsdagur, frístund lokuð.
  • 2. febr. – starfsdagur, frístund lokuð.
  • 3. og 4. febr. – foreldraviðtalsdagar, frístund opin frá kl. 8:00-16:00 *
  • 18. febr. – öskudagur, frístund lokuð.
  • 19. – 20. febr. – vetrarfrí, frístund lokuð.
  • 3. mars – útivistardagur, frístund opin.
  • 28. mars.– 6. apríl – páskaleyfi, frístund lokuð.
  • 4. júní – síðasti skóladagur nemenda, frístund opin.

*Skrá þarf börn hjá starfsmönnum frístundar eða ritara þá daga sem eru
stjörnumerktir og greitt er sérstaklega fyrir þá.