Föstudaginn 20. mars fengum við góða heimsókn á samverustund en Svala Björk Jónsdóttir tannlæknir kom til okkar og fræddi nemendur um tannvernd. Dagurinn er alþjóðlegur tannverndardagur og vikan var tileinkuð tannvernd. Svala Björk á tvær dætur í Hrafnagilsskóla en það er sérstaklega ánægjulegt að fá foreldra í heimsókn til okkar og ánægjulegt að finna velvild og væntumþykju í garð nemenda og skólans.

Svala Björk sýndi nemendum skemmtilegt myndband um tennur og tannheilsu og var með sérstaklega skemmtilega og líflega fræðslu fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Að auki fengu allir nemendur skólans tannbursta að gjöf, en Eyjafjarðarsveit styrkti það framtak.. Við þökkum Svölu Björk kærlega fyrir komuna og gjafirnar og minnum á að vatn og mjólk eru bestu drykkirnir fyrir tennurnar!