Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla var haldin í Laugarborg í gærkvöldi. Nemendur miðstigs sýndu stytta útgáfu af hinu sívinsæla leikriti um Kardimommubæinn við góðar undirtektir gesta. Sýningin var afrakstur mikillar vinnu nemenda sem sáu ekki aðeins um að leika, syngja og dansa heldur sáu þeir einnig um gerð leikmyndar, leikskrár og alla tæknivinnu.

Allt gekk mjög vel fyrir sig og voru nemendur skólanum til mikillar fyrirmyndar. Að sýningu lokinni var boðið upp á hressingu og ball. Hrafnagilsskóli þakkar nemendum og kennurum fyrir frábæra sýningu og gestum fyrir komuna.