Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla verður haldin í Laugarborg, fimmtudaginn 12. mars kl. 19:00.

Nemendur í 5., 6. og 7. bekk sýna stytta útgáfu af leikritinu um hinn sívinsæla Kardimommubæ.

Auk þess að leika, syngja og dansa í sýningunni sjá nemendur m.a. um leikmynd, leikskrá og tæknivinnu.

Að loknum skemmtiatriðum verður boðið upp á hressingu og síðan verður ball.

Skemmtuninni lýkur kl. 21:15. Aðgangseyrir er 2.000 kr. fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir börn á grunnskólaaldri (aðrir en sýnendur) og frítt fyrir þá sem yngri eru.

Allur ágóði fer í sjóð sem greiðir niður lyftugjöld í skíðaferð og einnig fá 7. bekkingar niðurgreiðslu þegar þeir fara í skólabúðirnar á Reykjum. Veitingar eru innifaldar í verðinu og sjoppa verður á staðnum.

Athugið að núna verður hægt að greiða með posa. 

Öll eru hjartanlega velkomin!
Nemendur 5.-7. bekkjar Hrafnagilsskóla