Það var líflegt um að litast í Hrafnagilsskóla þegar haldið var upp á sprengidaginn með hátíðlegum brag. Dagurinn er fastur liður í skólastarfinu og einkenndist að venju af fjölbreyttum uppákomum og þátttöku nemenda.

Nemendur mættu til leiks í skrautlegum búningum og mátti sjá ýmsar kynjaverur, allt frá dýrum til drauga, á sveimi um skólann. Dagskráin bauð upp á ýmislegt skemmtilegt, meðal annars var sett upp draugahús og spákonur tóku á móti gestum.

Hátíðarhöldunum lauk síðan með tunnuslætti þar sem kötturinn var sleginn úr tunnunni samkvæmt gömlum sið.

Hér má nálgast myndir frá deginum