Kæru foreldrar/forráðamenn nemenda í Hrafnagilsskóla.
Stjórn foreldrafélagsins boðar til aðalfundar foreldrafélagsins n.k. miðvikudagskvöld, 9. október. Að fundi loknum verður áhugaverður fyrirlestur sem á erindi við okkur öll og vonumst við að sjálfsögðu eftir góðri þátttöku og mætingu á hvort tveggja.
Frekari upplýsingar eru hér í viðhengi og einnig er viðburðurinn auglýstur í gegnum facebooksíðu félagsins.