Skáld í aðalhlutverki á Degi íslenskrar tungu
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Hrafnagilsskóla með hátíð í íþróttasalnum, eins og hefð er fyrir. Í aðdraganda hátíðarinnar voru þemadagar í skólanum og að þessu sinni var þemað skáld. Nemendur unnu saman í aldursblönduðum hópum á hverju stigi og sýndu gestum afraksturinn á hátíðinni.
Dagskráin hófst á samsöng nemenda og gesta undir stjórn tónmenntakennaranna Silju Garðarsdóttur og Bjarna Karlssonar. Sungið var lagið „Á íslensku má alltaf finna svar“ eftir Atla Heimi Sveinsson við texta Þórarins Eldjárns.
Nemendur á yngsta stigi kynntust Astrid Lindgren á þemadögunum og fóru á milli sex stöðva með fjölbreyttum verkefnum. Þeir sungu lagasyrpu úr ævintýrunum um Línu langsokk og Emil í Kattholti og nemendur úr 3. og 4. bekk kynntu stöðvarnar.
Á miðstigi var unnið með Jóa Pé og Króla, Bubba Morthens og Skálmöld. Nemendur greindu texta, sömdu ljóð og lög, hönnuðu plötuumslög, gerðu myndverk á refil og bjuggu til skúlptúr af Fenrisúlfinum eins og þeir sáu hann fyrir sér.
Á Degi íslenskrar tungu hefst einnig formlegur undirbúningur 7. bekkjar fyrir Stóru upplestrarkeppnina. Í ár unnu nemendur með texta Sálarinnar hans Jóns míns, leituðu að ljóðstöfum og rími, túlkuðu textana og fluttu nokkra þeirra á hátíðinni.
Unglingarnir völdu á milli þriggja stöðva. Á myndlistarstöðinni „Orð verða að list“ máluðu nemendur lagatexta á striga, gerðu myrkvaljóð og götulist með íslenskum orðum og teiknuðu myndir af íslenskum orðtökum. Á skúlptúrstöðinni urðu til úr endurnýttum efniviði líkön sem tengjast þekktum ljóðum og textum, meðal annars kirkja, kappakstursbíll, kóngulóarvefur og Vaglaskógur.
Nemendur í 8.–10. bekk gáfu einnig út skólablaðið Hrafninn. Þrettán manna ritstjórn tók viðtöl og ljósmyndir og hönnunarteymi sá um útlit og uppsetningu. Blaðið má lesa hér á heimasíðunni.
Tónlist unglinganna
Á tónlistar- og myndbandastöðinni, sem Bjarni og Elva Díana sáu um, var megináherslan á textann. Nemendur máttu semja eigið lag og texta eða nýjan íslenskan texta við lag sem þegar er til, og sumir gerðu tónlistarmyndband við verkið. Hljómsveitin Nú jæja, skipuð Ísaki Fannari, Angel og Árna, flutti frumsamda lagið Fjöll á hátíðinni.
Hér má hlusta á og horfa á verkin:
Fjöll – frumsamið lag eftir Ísak Fannar, Gabríel Mána og Angel, flutt af hljómsveitinni Nú jæja.
Skíðafjallið – frumsamið lag eftir Elmar og Kristófer.
Fjöll – frumsamið lag eftir Ísak Fannar, Gabríel Mána og Angel, flutt af hljómsveitinni Nú jæja.
Elskan – eftir Annýju, Maríu og Birtu (nýr texti við Baby eftir Justin Bieber).
Bergrós og Túlipanarnir – eftir Gló, Viktoríu, Vilborgu og Höllu (nýr texti við Dimmalimm eftir Rjómann og SZK).
Přání ke hvězdám – eftir Anežku (nýr texti við Í síðasta skipti eftir Friðrik Dór).
Hátíðinni lauk með því að allir nemendur skólans sungu „Lífið er konsert“ eftir Eirík Bóasson við texta Emilíu Baldursdóttur, í útsetningu Guðlaugs Viktorssonar. Bæði eru þau úr Eyjafjarðarsveit. Að dagskrá lokinni gátu gestir skoðað verk nemenda í salnum og nutu kaffihlaðborðs 10. bekkjar.














