Skólablað Hrafnagilsskóla er komið út
Skólablaðið Hrafninn kom út í dag, 16. nóvember, á Degi íslenskrar tungu. Blaðið er 26 síður og er unnið af nemendum á unglingastigi í tengslum við þemadaga skólans, en þemað í ár er skáld.
Á forsíðu blaðsins er Fenrisúlfur sem nemendur á miðstigi bjuggu til á þemadögunum. Í blaðinu er sagt frá úlfinum og sögunni af Tý, auk þess sem fjallað er um Jónas Hallgrímsson, uppruna skáldskaparins samkvæmt Snorra-Eddu og ljóðið Á Sprengisandi eftir Grím Thomsen.
Blaðamenn tóku viðtöl við tónlistarmennina og höfundana Villa Naglbít, Friðrik Dór, Jón Jósep Snæbjörnsson og Ágúst Þór Brynjarsson. Einnig var rætt við Tómas Breka Baldursson, nemanda í 6. bekk, sem hefur gefið út bókina Eitthvað leynist í skóginum, Björk aðstoðarskólastjóra og Þorgils Magnússon, smið hjá B. Hreiðarssonum, sem sagði frá framkvæmdunum við skólann. Þá var leikskólinn Krummakot heimsóttur.
Í blaðinu eru einnig ljóð eftir nemendur, bókmenntahorn, myndlistarhorn, uppskriftir, brandarar, orðaleit og krossgáta, ásamt svipmyndum frá öllum stigum skólans.
Ritstjórn skipuðu Anna María Jónbjörnsdóttir, Björgvin Freyr Snorrason, Einar Hjalti Steingrímsson, Gunnar Krishna Þorgilsson, Hafrún Lea Jónsdóttir, Hafþór Bjarki Óttarsson, Halldóra Brá Hákonardóttir, Iðunn Jónsdóttir, Ísey Nanna V. Krüger, Lilja Sól Kristbjörnsdóttir, Rannveig Rut Reynisdóttir, Ylva Ísadóra E. van der Werve og Þórunn Sif Andradóttir. Kennarar hópsins voru Vilborg Birna Þorsteinsdóttir og Hans Rúnar Snorrason.
Blaðið má lesa hér: