VIÐ STÖNDUM STERK SAMAN GEGN EINELTI!

DAGUR EINELTIS er haldinn ár hvert þann 8. nóvember. Í tilefni þess lásum við öll á yngsta stigi bókina Má ég vera memm? eftir Hörpu Lúthersdóttur. Sagan fjallar um einelti í máli og myndum á áhrifaríkan hátt sem höfðar einstaklega vel til barna. Höfundur byggir söguna á eigin reynslu af einelti sem hún varð fyrir á grunnskólaaldri. Að lestri loknum áttu nemendur góðar umræður um einelti og ólíkar birtingarmyndir þess og afleiðingar.

Nemendur voru hvattir til að sýna hugrekki, segja frá og standa með þeim sem þurfa á stuðningi að halda. Að lokum unnu allir nemendur lítið en um leið stórt og merkingarbært verkefni sem prýðir nú vegg á gangi yngsta stigs. Hvert barn lagði sitt af mörkum og saman mynduðu þau fallega og sterka heild. Titill verkefnisins segir allt sem segja þarf:

VIÐ STÖNDUM STERK SAMAN GEGN EINELTI!

Við hvetjum foreldra til þess að grípa boltann heima og ræða við börnin. Traust og góð samvinna heimilis og skóla er lykilatriði í að fyrirbyggja og bregðast við einelti.

Á heimasíðu skólans má finna nánari upplýsingar um meðferð eineltismála: https://krummi.is/grunnskolinn/medferd-eineltismala/ og á þessari síðu: https://gegneinelti.is/hvad-er-einelti/

Einelti er aldrei liðið og leita skal allra leiða til að stöðva það.